Leiðbeiningar um notkun í Microsoft Word

Fimmtudagur 29. júlí 2010

Hér er að finna PDF-skjal með leiðbeiningum um notkun í Microsoft Word 2004 og 2008.

Sækja

Word-tenging uppfærð

Föstudagur 23. júlí 2010

Galli fannst í Word-tengingunni sem kom fram við yfirlestur skjala sem innihalda tengla eða tilvitnanir. Vandinn lýsir sér þannig að hjálparforritið frýs og ekki er auðvelt að hætta í því.

Gallinn hefur nú verið lagfærður og því er mælt með uppfærslu ekki seinna en strax. Lagfæringin hefur einnig önnur jákvæð áhrif á yfirlestur stærri skjala.

Uppfærsla ætti að vera í boði sjálfkrafa við næstu ræsingu Word. Ef ekki má velja „Athuga með uppfærslu“ af valblaði Stafsetningar í Word.

Er Word 2008 óstöðugt á 10.6.3 eða nýrra?

Þriðjudagur 1. júní 2010

Til að nota Word með Stafsetningu á Snow Leopard (Mac OS X 10.6.0-10.6.2) þurfti tímabundna breytingu sem er nú óþörf.

Það er jafnframt mikilvægt að fjarlægja hana svo Word verði ekki óstöðugt.
Sækja lagfæringu

Stafsetning 2010 er komin út

Laugardagur 19. desember 2009

Stafsetning 2010 er tilbúin.

Boðið er upp á nokkrar útfærslur:

  • Stafsetning 2010 fyrir eina tölvu (nú $99, áður $129)
  • Stafsetning 2010 - uppfærsla úr 2004 ($79)
  • Stafsetning 2010 fyrir tvær tölvur ($139)
  • Stafsetning 2010 fyrir þrjár tölvur ($189)
  • Stafsetning 2010 - viðbótarleyfi (aðeins $49)
  • Stafsetning 2010 fyrir fagmenn (inniheldur Adobe InDesign tengingu) $199

Nýtt og sveigjanlegt leyfiskerfi gerir notendum kleift að nota sama raðnúmer á fleiri en eina tölvu ef keypt eru viðbótarleyfi.

Um gjaldmiðla og verð

Við höfum lækkað verð frá því sem var áður vegna gengisþróunar. Stafsetning 2004 kostaði $129 en 2010 útgáfan $99. Hún er enn ódýrari fyrir þá sem eiga 2004 útgáfuna fyrir og mun kosta $79.

Panta eintak

Ef „Íslenska (Stafsetning)“ birtist ekki sem möguleiki í Snow Leopard…

Þriðjudagur 8. desember 2009

Ef „Íslenska (Stafsetning)“ birtist ekki sem möguleiki í Snow Leopard (Mac OS X 10.6) þarf að eyða eftirfarandi skrá og velja Log Out undir Apple-merkinu efst vinstra megin á skjánum:

~/Library/Caches/com.apple.nsservicescache.plist

Dæmi um staðsetningu
Macintosh HD > Users > Anna > Library > Caches > com.apple.nsservicescache.plist

Skráin er einfaldlega dregin í ruslakörfuna neðst á skjánum og útskráning framkvæmd að því loknu.

SÍÐASTA þróunarútgáfan af Stafsetningu er tilbúin

Þriðjudagur 1. desember 2009

Við vorum að setja síðustu þróunarútgáfuna á vefinn fyrir áhugasama (sækja). Útgáfan er ansi nálægt þeirri sem kemur á markað þann 20. desember næstkomandi.

Markverðar nýjungar:

  • Tungumálaskipti nú möguleg á valblaði án þess að nota flýtihnappa
  • Tungumálaskipti nú möguleg á Snow Leopard (Mac OS X 10.6)
  • Word 2008: Yfirlestur er talsvert léttari í keyrslu. Sérstaklega á þetta við um stærri skjöl.
  • Word 2008: Innsláttur broddstafa virkar alltaf. (eða allt að því, og ef það klikkar er það ekki okkur að kenna lengur)
  • Word 2008: Nú er hægt að slökkva alveg á yfirlestri í stillingum Stafsetningar.

Mikilvægt varðandi Snow Leopard stýrikerfið:

  • Tungumálaskipti krefjast innsetningar SIMBL sem má sækja hér. Þetta er smávægileg kerfisviðbót sem gerir forritum kleift að stjórna öðrum forritum.

Endilega settu þessa nýju útgáfu inn ef þú ert nú þegar með eldri útgáfu af Stafsetningu 2009 því sú sem er á tölvunni þinni er runnin út!

Word 2008 og Snjóbarði

Miðvikudagur 25. nóvember 2009

Word 2008Einn vandinn eftir uppfærslu í Snow Leopard (Mac OS X 10.6) er að hjálparforrit Stafsetningar fyrir Word getur ekki náð sambandi við Word 2008 og fer því aldrei í gang. Ástæðan liggur bæði í galla í einni Word skrá sem og skort á sveigjanleika Mac OS X 10.6-10.6.2  í slíkum tilvikum. Til fróðleiks þá var þessi sami galli ekki vandamál í Leopard (Mac OS X 10.5).

Apple lagfærði vandann í 10.6.3 og því er lausnin nú að uppfæra stýrikerfið.

There is a problem with the Office database

Miðvikudagur 25. nóvember 2009

Eftir uppfærslu í Snow Leopard (Mac OS X 10.6) geta notendur Microsoft Word 2008 séð eftirfarandi villu þar sem stendur „There is a problem with the office database“.

WordDatabaseProblem

Þessi villa hefur í raun ekkert með Stafsetningu að gera en hún merkir þó að upp er kominn vandi eftir uppfærslu stýrikerfisins sem þarf að lagfæra þar sem vandinn hefur áhrif á yfirlestur. Án lagfæringar getur Word ekki skilað réttu tungumáli skjals til Stafsetningar.

Einfaldast er að henda möppunni „Microsoft“ úr stillingamöppu notandans.

Dæmi um slóð væri

/Users/[nafnið þitt]/Library/Preferences/Microsoft

Nóg er að:

1. Hætta í Word

2. Draga þessa möppu í ruslið

3. Ræsa Word

Listi yfir mögulegar endingar

Miðvikudagur 25. nóvember 2009

Í þeim forritum sem styðja kerfislægan yfirlestur er hægt að fá lista yfir mögulegar endingar ef skrifaðir hafa verið þrír stafir eða fleiri.

Þá er til dæmis hægt skrifa „stað“ og ýta á F5 (eða alt-esc) til að fá eftirfarandi lista:

completion

Þá má nota örvarhnappana á hnappaborðinu til að velja orð og þá vendihnappinn til að staðfesta það.

Ef sérstök orð finnast með sömu upphafsstöfum innan þess skjals sem þú ert að vinna í hverju sinni er þeim skilað sem fyrstu tillögum.

Hvernig virkar svona yfirlestur?

Miðvikudagur 25. nóvember 2009

Stýrikerfið Mac OS X styður svokallaðan kerfislægan yfirlestur en það táknar að hugbúnaðarframleiðendur þurfa ekki að smíða sinn eigin yfirlestur heldur geta þeir látið stýrikerfið sjá um hann.

Orð sem eru álitin rangt stafsett eru undirstrikuð með rauðu. Ef smellt er með hægri músarhnappi eða ctrl-smellt þá birtist listi með tillögum að réttri stafsetningu. Einnig er hægt að hafa lítinn glugga opinn sem birtir tillögurnar jafn óðum.

Þetta táknar að þú getur látið lesa stafsetningu tölvupósts yfir jafn óðum í Mail, spjallið í Adium, Windows Messenger, Skype, iChat eða ritgerðina í Pages, TextEdit, Mellel eða Nisus Writer.

Þar sem Safari vafrinn styður þetta einnig er lítið mál að lesa yfir texta sem sleginn er inn á vefsíður. Þannig má t.a.m. lesa yfir stafsetningu á fréttum og efni sem sent er inn í vefumsjónarkerfi, lesa yfir „blogg“ nú eða texta sem er sendur inn á umræðu- og samskiptavefi eins og t.d. Facebook.

Uppfærslufréttir

Mánudagur 2. nóvember 2009

Örstutt um nöfn stýrikerfa hjá Apple áður en lengra er haldið.

  • „Tiger“ er útgáfa 10.4
  • „Leopard“ er útgáfa 10.5
  • „Snow Leopard“ er útgáfa 10.6.

Snow Leopard er það allra nýjasta og er að flestu leyti ein besta uppfærsla sem hefur komið frá ávaxtafyrirtækinu um árabil. Síðustu tvö ár hafa forritarar Apple gert lítið annað en að fínpússa stýrikerfið með hraðaaukningu í huga. Það var í raun vinnureglan — aukinn hraði og bannað að bæta við nýjungum. Að vísu er stýrikerfið ekki laust við nýjungar og er einna markverðastur möguleikinn á tengingu við Microsoft Exchange í Address Book, iCal og Mail sem mun án efa gleðja margan Íslendinginn á Windows-væddum vinnustöðum landsins.
Stýrikerfið er samt það nýtt að það eru örfáir vankantar að koma upp á yfirborðið sem verða slípaðir á næstunni.

Tungumálaskipti

Eins og notendur Snow Leopard hafa tekið eftir hefur ekki verið auðvelt að temja tungumálavalið á yfirlestri. Þetta er vegna breytinga í kerfinu sem og nýjungar sem ætlað er að velja rétta tungumálið.

Til að fá þetta allt í lag ber að varast að velja efsta möguleikann í yfirlestrarglugganum „Automatic by Language“ því stýrikerfið getur ekki greint íslensku á fullnægjandi máta og hætt er við að strikað verði undir flestallan texta.

Snow Leopard notendur verða einnig að setja inn SIMBL hjálpareininguna sem hægt er að sækja hér: SIMBL-0.9.7a.zip

Microsoft Word

Hingað til hefur yfirlestur í Word ekki gengið á Snow Leopard og hann er þessa stundina í örlitlu uppnámi vegna galla í nýja stýrikerfinu. Þó að Apple í Bandaríkjunum hafi viðurkennt vandann eiga þeir enn eftir að staðfesta tímasetningu á lagfæringu.

Í stuttu máli er samskiptalag Word gallað og stýrikerfið er ekki nægjanlega sveigjanlegt til að vinna framhjá því eins og áður í Leopard (Mac OS X 10.5).

Við erum mjög vongóð um að Apple bregðist við þessu hratt og vel þar sem um afturför frá Leopard er um að ræða.

Sækja nýjustu útgáfuna hér.

Uppfærsla fyrir Snow Leopard (og önnur stýrikerfi)

Þriðjudagur 1. september 2009

Það er komin uppfærð útgáfa á vefinn með innsetningu sem virkar einnig í Snow Leopard (Mac OS X 10.6). Hafa ber í huga að Snow Leopard virkar ekki alveg eins og Leopard (Mac OS X 10.5) þannig að við eigum eftir að uppfæra innsetningarforritið enn frekar. Sem tímabundin lausn er innsetningarforritið frá Apple ræst til að innsetja Snow Leopard viðbæturnar.

Tungumálaskiptingar virka ekki enn í Safari og Mail í Snow Leopard en við vonumst til að leysa úr því fljótlega. Tímabundin lausn er að velja viðkomandi forrit í Finder og velja File > Get Info og haka við “Run in 32-bit mode“.

Stafsetning 2009 í Outlook 2011

Fimmtudagur 13. ágúst 2009

OutlookÞetta er örlítið bráðlát frétt en frétt engu að síður. Stafsetning mun að öllu óbreyttu virka í næstu útgáfu af Outlook á Mac OS X en Microsoft-liðar sitja sveittir við og hafa skrifað nýtt Outlook fyrir Makkann frá grunni.

Vissulega erum við snemma í því en það er þó makalaust hvað rúmt ár er fljótt að líða.

Office 2011 fyrir Mac er sem sagt væntanlegt fyrir lok ársins 2010 og mun innihalda þessa nýju útgáfu af Outlook sem styður kerfislægan yfirlestur Stafsetningar 2010.

Annað áhugavert er endurvakning Visual Basic en margir hafa saknað þess í Office 2008.

Af Office forritunum er nú þegar stuðningur við Stafsetningu í Word, Microsoft Messenger (MSN) og „My Day“ sem er hluti Entourage.

Ný uppfærsla komin á vefinn

Þriðjudagur 4. ágúst 2009

Nokkrar nýjar táknmyndir úr stjórnborðinu

Nokkrar nýjar táknmyndir úr stjórnborðinu


Jæja loksins loksins. Fimmta „beta“ útgáfan af Stafsetningu 2009 er komin á vefinn. Stjórnborðið verður sífellt glæsilegra og nú er hægt að stilla fjölmarga kosti hugbúnaðarins.

Endilega sækið þessa nýjustu útgáfu og njótið nýjunganna.

Fylgstu með á Twitter eða Facebook

Sunnudagur 2. ágúst 2009

Bloggkerfið á Stafsetning.is er nú orðið samtengt Twitter og Facebook. Ef þú notar þessar síður er ekki úr vegi að fylgjast með okkur með aðstoð þessara kerfa.

Núverandi þróunarútgáfa Stafsetningar er útrunnin – ný væntanleg á morgun, sunnudag.

Laugardagur 1. ágúst 2009

Núverandi þróunarútgáfa Stafsetningar er útrunnin og því er nauðsynlegt að stilla á enskan yfirlestur til að losna við „Couldn't Contact Spell Checker“ skilaboð.

Einnig er hægt að sækja innsetningu Stafsetningar og velja „Fjarlægja“ til að taka hugbúnaðinn út tímabundið.

Uppfærsla 1. júlí

Miðvikudagur 1. júlí 2009

Endilega uppfærið í nýjustu útgáfuna sem er komin á vefinn.

Stjórnborðið er nú mun stöðugra og fjöldi stillinga hefur verið gerður virkur að nýju. Að auki er nú hægt að ráða því hvort heiti tungumáls er birt við hlið fánans í valblaðaröndinni efst á skjánum.

Minnum aftur góðfúslega á 10.5.7 uppfærsluna frá Apple sem lagfærir tungumálaskipti svo um munar.

Stór uppfærsla

Þriðjudagur 2. júní 2009

Stjórnborð 2. júní 2009Það er komin stór uppfærsla á vefinn sem inniheldur talsverðar viðbætur.

Meðal nýjunga er endurskrifað stjórnborð ásamt ítarlegri yfirlestrarreglum (þó svo að stillingarnar séu ekki enn virkar)
Að auki er nú hægt að ráða því algerlega hvaða tungumál eru notuð við yfirlestur og úthluta hverju þeirra flýtihnapp að eigin vali. Þetta er nokkuð sem marga hefur vantað þar sem íslenska og enska eru víst ekki alveg einu tungumálin í heiminum :)

Ennfremur er hægt að ráða því hvaða tungumál er stillt á í upphafi við ræsingu tölvunnar eða eftir innskráningu notanda.

Meðhöndlun eigin orðalista er nú orðin gríðarlega fullkomin og má nefna:

  • Listar fyrir ÖLL tungumál
  • Leit innan lista
  • Hægt að eyða og bæta við að vild
  • Inn- og útflutningur gagna

Tillögur innihalda nú orð af eigin listum sem og Address Book en áður voru þau orð einungis notuð við yfirlesturinn sjálfan. Þær eru merktar nú í fyrstu vegna prófana en við tökum þær merkingar af fljótlega.

Hægt er að læra orð með flýtihnappnum cmd-alt-+ án þess að velja orðið. Nóg er ef innsláttarbendillinn er innan í orðinu. Þetta virkar í TextEdit, Safari, Mail og flestum öðrum en þó ekki enn í Pages.

Örlítið brothætt þó

Það er ansi líklegt að það komi uppfærsla á næstu dögum þar sem margar stillingar eru óvirkar og stjórnborðið er ansi brothætt. Þeir notendur sem eru lenda í því að „SAUIAgent“ dettur út geta ræst það forrit handvirkt en það er staðsett í

/Library/Application Support/Stafsetning

Sem fyrr hvetjum við þá sem ekki hafa uppfært Mac OS X nú þegar í 10.5.7 að gera það með Software Update.

Bráðnauðsynleg Mac OS X 10.5.7 uppfærsla

Miðvikudagur 13. maí 2009

Í dag kom út uppfærsla frá Apple fyrir stýrikerfið Mac OS X. Þessi útgáfa er númer 10.5.7 og inniheldur bráðnauðsynlegar lagfæringar fyrir notendur Stafsetningar 2009 sem nota stýrikerfið Mac OS X 10.5 - Leopard.

Upphaflega átti þessi uppfærsla að koma út í apríl en Apple kaus að bæta fjölda lagfæringa við sem og öryggisviðbóta. Þetta er því vafalítið ein umfangsmesta og mikilvægasta uppfærsla sem hefur komið lengi frá Apple og við hvetjum alla til að sækja hana og setja inn. Uppfærslan er engin smásmíði eða allt að 729MB eftir gerð tölvunnar.

Hver er umrædd lagfæring?

Vandinn var sá að þegar skipt var um tungumál yfirlestrar virkaði það ekki og var nauðsynlegt að endurræsa viðkomandi forrit eins og t.d. Mail eða Safari.
Þetta er virkni sem var í lagi í 10.3 og 10.4 en datt út í 10.5 þegar það kom á markað. Þessi vandi hefur nú verið lagfærður og virka tungumálaskiptin nú samstundis eins og vera ber.

Þægileg tungumálaskipti með lyklaborði er einn af lykileiginleikum Stafsetningar 2004 og erum við búin að auka enn frekar við þann möguleika í 2009 útgáfunni en hingað til án árangurs vegna galla í sjálfu stýrikerfinu.
Nú getum við því loksins hafist handa við að klára og prófa þessa nýju og fullkomnari virkni og gefið út Stafsetningu 2009 að því loknu sem ætti að verða mjög fljótlega. Næsta prufuútgáfa kemur út seint annað kvöld.

Hvernig uppfæri ég stýrikerfið?

Þú smellir á Apple merkið efst í vinstra horninu og velur þar „Software Update“.

Þá birtist listi yfir allar uppfærslur sem eru í boði og þú skaltu samþykkja innsetningu þeirra. Athugaðu að tölvan verður endurræst eftir uppfærslu stýrikerfisins.

InDesign og InCopy CS4 bætast í hópinn

Laugardagur 4. apríl 2009

Gleðifréttir fyrir þá hönnuði sem eru með nýjustu CS4 forritin frá Adobe.

Hér er ný prufuútgáfa af Stafsetningu 2009 fyrir Adobe InCopy og InDesign CS4:

Sækja

Sem fyrr þarf Stafsetning 2009 að vera til staðar á tölvunni. Þó Adobe tengingin sé aðskilin vara þarf hún á hinni að halda.

Stafsetning 2009 uppfærð 1. apríl

Miðvikudagur 1. apríl 2009

Það er alltaf gaman að tilkynna stórkostlega hluti 1. apríl. Það trúir manni enginn...


InDesign CS3 tenging

Stóru fréttirnar eru auðvitað þær sem varða InDesign tenginguna sem er nú komin inn til prufu og verður hluti af sérstakri útgáfu fyrir fagmenn.

Word-tengingin

Hún er þó enn örlítið óstöðug en við ættum að ná að temja hana á næstunni.

Getur nú slitið í sundur orð

Þetta er afar gagnlegt ef gleymist að slá inn bil á milli orða. Þá er tillagan fyrir „tilprufu“ „til prufu“. Alveg einstaklega hentugt í Pages með sjálfvirkum leiðréttingum.

Sjálfvirkar leiðréttingar í nýjustu útgáfu Pages (ritvinnslunni í iWork).

Ef það er bara ein tillaga er hægt að nota hana sjálfvirkt. Leiðbeiningar hér.

NeoOffice 3.0 samhæfni

Örlitlar lagfæringar hér til að tryggja fulla virkni með nýja NeoOffice sem kom út í gær.

Sjálfvirkar leiðréttingar í Pages ‘09

Miðvikudagur 1. apríl 2009

Nú er hægt að nota Stafsetningu 2009 og Pages '09 saman á snjallan hátt.

Innslátt má leiðrétta jafnóðum.

Til að gera þennan möguleika virkan skaltu velja:

picture-11

Pages > Preferences > Auto-Correction

Hakaðu við:

picture-12

Automatically use spell-checker corrections.

Og lokaðu stillingaglugganum.

Stafsetning 2009 fyrir InDesign CS3 tilbúin

Þriðjudagur 31. mars 2009

indesignstafsetningvefNú verður prentvillupúkanum útrýmt!

Stafsetning 2009 fyrir sjálft Adobe InDesign CS3 er tilbúin en þó með þeim fyrirvara að viðbótin krefst þess að Stafsetning 2009 (frá 1. apríl eða nýrri) sé til staðar þannig að forútgáfa af þeim frábæra hugbúnaði þarf að vera til staðar á tölvunni.

Ætlunin er að bjóða tvær útgáfur af Stafsetningu 2009. Hefðbundna og fullkomnari útgáfu fyrir fagfólk sem notar umbrotsforrit sem þessi.

Ef þú ert einn þeirra sem hafa ekki hugmynd um hvað í ósköpunum þetta InDesign er þá er það sem sagt forritið sem allflestar bækur, bæklingar, dagblöð og tímarit eru sett upp í áður en þau eru send í prentun.  Þannig að það er aldrei að vita að þetta framlag okkar fækki villum í næsta DV, Mogga eða Fréttablaði :)

InDesign CS4 notendur þurfa ekki að örvænta — við erum að vinna í þeirri útgáfu og hún kemur vonandi á næstu dögum.

Sækja hér (0,6MB): Stafsetning 2009 fyrir InDesign CS3

Bættu fréttum af Stafsetning.is inn í Mail

Fimmtudagur 5. febrúar 2009

Það er hægt að fá fréttaþjónustu frá þessum vef beint inn í Mail á Mac OS X 10.5 (Leopard)

Veldu „Add RSS Feeds...“ af valblaðinu „File“.

Límdu inn „feed://www.stafsetning.is/efni/feed/“ og hakaðu við „Show in inbox“ og smelltu á „Add“ hnappinn.

Svo einfalt er það  nú.

Þessa tækni má að sjálfsögðu nota til að fá fréttir af öðrum vefsíðum beint inn í pósthólfið.

rss í Mail

Microsoft Office 2004 eða 2008 á mína tölvu?

Fimmtudagur 5. febrúar 2009

Word 2008Þegar 2004 útgáfan af Microsoft Office kom út voru allar Apple-tölvur með örgjörva af PowerPC-gerð.

Apple skipti hinsvegar um örgjörvagerð árið 2006 og fór að nota örgjörva frá Intel.

Nú notar Mac OS X sérstaka þýðingarvél sem tryggir mögulega notkun hugbúnaðar sem var þróaður fyrir þessa eldri gerð örgjörva. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að afköst hugbúnaðarins eru ekki þau sömu og eins er minnisnotkun talsvert meiri sem hægir aftur á öðrum hlutum tölvunnar.

Því mælum við ekki með því að Office 2004 sé notaður á nýrri tölvum sem eru með Intel-örgjörva þar sem Office-pakkinn frá Microsoft var frekar þungur í keyrslu fyrir.

Uppfært í Office 2008

Office 2008 er því mun betri kostur fyrir nýrri tölvur (s.s. MacBook, MacBook Pro, Mac Pro og iMac eða Mac mini síðan janúar 2006).

Fjölmargar stofnanir og fyrirtæki eru með stórnotendasamninga við Microsoft á Íslandi og geta í krafti þessarra heildarsamninga útvegað Mac Office 2008 með mjög litlum tilkostnaði. Ef þú starfar á slíkum stað skaltu spyrja kerfisstjórann þinn um málið og biðja hann um að panta diskasett frá Microsoft með þessari nýjustu útgáfu.

Sértu ekki í stöðu til þess eða vantar hreinlega hraðvirkan Office-pakka fyrir Intel-tölvur skaltu líka skoða ókeypis lausn: NeoOffice. Stafsetning 2009 virkar prýðilega með þeim pakka.

Office 2008 á PowerPC-tölvum

Það er sömuleiðis ekkert sérstaklega góð hugmynd að fara í hina áttina — að nota nýjan og umfangsmikinn hugbúnað eins og Office 2008 á eldri tölvum þar sem  hann tekur mið af nýrri tölvubúnaði.

Couldn’t Contact Spell Checker?

Miðvikudagur 4. febrúar 2009

Villan „Couldn't Contact Spell Checker“ birtist þegar stýrikerfið nær ekki sambandi við yfirlesrarviðbót sem er skráð fyrir tilteknu tungumáli.

Þetta getur gerst ef hluti Stafsetningar er fjarlægður, eða hjá þeim sem hafa prófað forútgáfur sem hafa tímabundinn líftíma.

Til að losna við villuna er best að setja inn nýjustu útgáfu Stafsetningar 2009.

Ný forútgáfa 1. febrúar

Sunnudagur 1. febrúar 2009

Ný útgáfa var að fara í loftið rétt í þessu og inniheldur hún helst nýjungar í Word-tengingunni sem ræður nú við yfirlestur við innslátt og getur birt tillögur í mjög þægilegum, fljótandi glugga.

Þetta er enn á vinnslustigi þannig að það má búast við einhverjum hrekkjum í Word en annar yfirlestur virkar prýðilega. 

Hér er uppkast leiðbeininga fyrir notkun í Word 2008 og ekki veitir af:
Um yfirlestur í Word 2008

Þessa dagana erum við að slípa Word-tenginguna

Miðvikudagur 21. janúar 2009

Þessa dagana erum við að slípa Word-tenginguna enn frekar til m.t.t. hraðaaukningar og að auki er nú undirstrikun við innslátt nær tilbúin.

Stórglæsilegur tillögulisti birtist nú ef smellt er á eða rangt orð í Word þannig að hægt er að framkvæma leiðréttingar án þess að yfirlestrarglugginn sé opinn.

Þessar lagfæringar og viðbætur verða hluti af næstu uppfærslu sem er væntanleg eftir um viku.

Fréttir af þróun

Laugardagur 6. desember 2008

Nú stendur yfir þróun á einum af nokkrum nýjum möguleikum ásamt flutningi á stillingum úr System Preferences yfir í sjálfstætt forrit þar sem það er einfaldlega orðið full þröngt um hlutina í System Preferences. 

Orðagreining hefur verið endurbætt og öllum yfirlestri hraðað umtalsvert.

Þar sem um stórar breytingar er að ræða verður ekki gefin út uppfærsla fyrr en eftir nokkra daga.

Miðnæturolían brennd

Fimmtudagur 27. nóvember 2008

Örstuttar fréttir af framvindu mála.

Nú hefur Word-viðbótin verið færð í vel ásættanlegt form og einungis smávægilegar viðbætur væntanlegar á þeim vettvangi.

Nú stendur yfir þróun á nýju skráningarkerfi sem hefur tvo frábæra kosti fram yfir það gamla:

  • Skráning leyfa til reynslu
  • Fjölnotendaleyfi með sama raðnúmeri

Fjölnotendaleyfi verða sem sagt vel möguleg í 2009 útgáfunni og munu henta fyrirtækjum og stofnunum vel. Kerfisstjórar munu geta fengið skýrslu um notkun leyfa og þurfa nú ekki að halda utan um stök raðnúmer.

Þeir sem vilja prófa hugbúnaðinn munu eiga þess kost að sækja mánaðarleyfi til reynslu og geta gert upp hug sinn að þeim tíma loknum hvort þeir vilji fjárfesta í þessu gagnlega hjálpartæki (sem þeir munu auðvitað gera) :)

Sendi svo hér inn mynd að gamni af skrifborðinu þar sem þetta gerist allt saman. Eins og sést er aðal þróunartölvan ný iMac 24" sem er líklega ein besta tölva sem Apple hefur framleitt. Aðrar tölvur til prufu eru iMac G5 með 10.4.11, PowerBook 12" með 10.5 og þær sem sjást ekki eru Mac mini PowerPC með 10.4 ásamt MacBook Intel með 10.5.

Það er jú grundvallaratriði við hugbúnaðarþróun að prófa annað en það allra nýjasta og besta!

 

Notkun Stafsetningar 2009 í Pages 3 og 4 (’08 og ´09)

Mánudagur 24. nóvember 2008


Þrátt fyrir að Pages sé nýlegt forrit og noti alla þá nýjustu tækni sem önnur Apple-forrit eru byggð þá er yfirlesturinn nokkuð frábrugðinn í hegðun þar.

Þannig getur forritið blandað saman tungumálum í sama skjalinu og er þá textinn valinn og merktur tilteknu tungumáli. Pages kallar þá á viðeigandi yfirlestur eftir tungumáli.

Því er ekki að undra að notendur skilji ekki hví strikað er undir gild, íslensk orð þegar nýtt skjal er ritað eða unnið er í eldri skjölum.

Tungumál skoðað eða stillt

Veldu t.d. sniðmátið „Blank“. Áður en þú byrjar að skrifa geturðu skoðað tungumálið í upplýsingaglugga Pages undir „T“, „More“ og „Language“.  Ef þú sérð gluggann ekki geturðu birt hann með „View > Show Inspector“.

Ef þú ert að vinna í skjali sem inniheldur texta nú þegar skaltu velja hann allan (Edit > Select All) og stilla síðan tungumálið.

Síðan skaltu ekki gleyma að uppfæra stíl textans sem er í „stílaskúffunni“ (View > Show Styles Drawer). Þú sérð rautt tákn við stíl sem hefur breyst og hægrismellir á hann og velur „Redefine Style From Selection“. Þá tollir tungumálið við þann stíl ef þú notar hann síðar.

Yfirlestur er síðan aðgengilegur á hefðbundnum stað undir Edit > Spelling


Að gera Word tengingu virka – eða óvirka

Mánudagur 24. nóvember 2008

Word-tengingin er ræst sjálfkrafa ef Microsoft Word 2004 eða 2008 er ræst.

Þá birtast hnappar efst á skjánum sem hægt er að nota til að framkvæma yfirlestur.

Ef þeir birtast ekki skaltu framkvæma eftirfarandi:

Hættu í Word. (Word > Quit Word)

Veldu Apple > System Preferences

Smelltu á „Stafsetning“ sem er neðst undir „Other“.

Stillingaspjald Stafsetningar birtist þá og þar skaltu smella á Word-flipann.

Þar skaltu haka við birtingu hnapparandar.

Nú skaltu ræsa Word 2004 eða 2008.

Þá ættu hnapparnir að birtast efst á skjánum.

picture-36

Ef þeir gera það ekki (sumir hafa lent í því við prófanir) geturðu ræst hjálparforritið handvirkt en það er staðsett í möppunni Diskur > Library > Application Support > Stafsetning: og heitir „Stafsetning fyrir Word 2008“. Tvísmelltu bara á það forrit (þú getur dregið það í forritaröndina Dock neðst á skjánum til að ræsa það þaðan á einfaldan hátt.

Ný forútgáfa af Stafsetningu 2009 er tilbúin

Mánudagur 24. nóvember 2008

Meðal helstu nýjunga í þessari útgáfu er verulega endurbættur yfirlestur í Word. Nú birtast einfaldir hnappar efst á skjánum þegar Word er ræst með helstu aðgerðum yfirlestrar.

Word 2004 bætist í hópinn

Þeir voru þónokkrir sem höfðu samband til að lýsa yfir áhuga á því að fá þessa virkni í 2004 útgáfuna af Word og það er einstaklega ánægjulegt að skýra frá því að nýjasta útgáfan virkar einnig í Word 2004.

Yfirlestrarglugginn

Hér sést svo sjálfur yfirlestrarglugginn þar sem það er nú leikur einn að renna yfir skjöl og framkvæma leiðréttingar. Það sem meira er inniheldur glugginn nú flýtihnappa þannig að það er hægt að framkvæma allar aðgerðir án þess að nota músina!

Prófaðu strax í dag

Drífðu þig inn á stafsetning.is/2009 og nældu þér í þessa endurbættu útgáfu.

Yfirlestur á skjölum í ritvinnslu NeoOffice

Fimmtudagur 20. nóvember 2008

 

Eins og í Word þarf að velja allan texta skjalsins og tryggja að hann sé merktur sem íslenskur texti. Þetta er gert því forritin geta blandað saman tungumálum í sama skjalinu og kallað á viðeigandi yfirlestur eftir staðsetningu. Allt of oft eru íslensk Word-skjöl þannig að þau eru stillt á annað tungumál en íslensku og það er ein helsta ástæða þess að yfirlestur virðist ekki virka.
  1. Veldu allan textann með Edit > Select All
  2. Veldu Tools > Languages
  3. Veldu Icelandic
Nú geturðu smellt á hnappana sem hefja yfirlestur. Þeir eru tveir og afar mismunandi:
Sá sem er með undirstrikinu gerir yfirlestur virkan sem strikar undir orðin í skjalinu beint en hinn opnar yfirlestrarglugga sem er svona:
Leiðréttingar beint í skjalinu
Til að leiðrétta orð sem er strikað undir hægrismellirðu (eða heldur niðri ctrl og smellir) á orðið. Þá birtast tillögurnar á lista sem hægt er að velja úr.
Um eigin orð
Þegar orðum er bætt á eigin orðalista í NeoOffice eru þau ekki sett í miðlægt orðasafn notandans sem nýtist utan NeoOffice.
Þó er það þannig að ef orð eru sett í eigin orðalista í öðrum forritum virka þau í NeoOffice.
Viltu setja NeoOffice upp?
Hér eru leiðbeiningar um innsetningu NeoOffice

NeoOffice – innsetning

Fimmtudagur 20. nóvember 2008

Hér eru leiðbeiningar fyrir þá sem vilja sækja NeoOffice skrifstofuhugbúnaðinn en Stafsetning 2009 vinnur með innbyggða yfirlestrinum í þessum gagnlega hugbúnaði.

Náðu í hugbúnaðinn
Farðu á niðurhalsvef NeoOffice eða náðu í útgáfu 3.0 héðan beint frá okkur innanlands.

Þar velurðu annað hvort PowerPC eða Intel útgáfuna eftir því hvaða örgjörvi er í tölvunni.
Reglan er sú að ef tölvan heitir Power Mac, PowerBook eða iBook þá er hún með PowerPC örgjörva, annars Intel.
Mac mini og iMac eru erfiðari en þá þarftu að velja Apple->About this Mac og skoða örgjörvagerðina þar. (e. Processor)

Þegar þú hefur valið hvaðan þú vilt sækja eintak birtist framvinda niðurhals í Safari (eða hvaða vafra sem er í raun).
Uppsetning
Þegar vafrinn þinn hefur sótt eintakið birtist gluggi í Finder (Blái broskarlinn sem þú getur valið neðst á skjánum í Dock).
Í þessum glugga er innsetningarforrit NeoOffice og ber nafn svipað NeoOffice-2.2.5-Intel.pkg.
Þú skalt tvísmella á þennan innsetningarpakka og þá fer forritið Installer í gang og leiðir þig í gegn um innsetninguna.
Í því ferli verður óskað eftir aðgangsorði umsjónarmanns tölvunnar. Þetta er bara aðgangsorðið sem þú valdir þegar þú settir tölvuna upp í fyrsta skiptið.
Eftir innsetningu er hægt að nálgast NeoOffice skrifstofuhugbúnaðinn í möppunni Applications á harða disknum.