Microsoft Office 2004 eða 2008 á mína tölvu?
Þegar 2004 útgáfan af Microsoft Office kom út voru allar Apple-tölvur með örgjörva af PowerPC-gerð.
Apple skipti hinsvegar um örgjörvagerð árið 2006 og fór að nota örgjörva frá Intel.
Nú notar Mac OS X sérstaka þýðingarvél sem tryggir mögulega notkun hugbúnaðar sem var þróaður fyrir þessa eldri gerð örgjörva. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að afköst hugbúnaðarins eru ekki þau sömu og eins er minnisnotkun talsvert meiri sem hægir aftur á öðrum hlutum tölvunnar.
Því mælum við ekki með því að Office 2004 sé notaður á nýrri tölvum sem eru með Intel-örgjörva þar sem Office-pakkinn frá Microsoft var frekar þungur í keyrslu fyrir.
Uppfært í Office 2008
Office 2008 er því mun betri kostur fyrir nýrri tölvur (s.s. MacBook, MacBook Pro, Mac Pro og iMac eða Mac mini síðan janúar 2006).
Fjölmargar stofnanir og fyrirtæki eru með stórnotendasamninga við Microsoft á Íslandi og geta í krafti þessarra heildarsamninga útvegað Mac Office 2008 með mjög litlum tilkostnaði. Ef þú starfar á slíkum stað skaltu spyrja kerfisstjórann þinn um málið og biðja hann um að panta diskasett frá Microsoft með þessari nýjustu útgáfu.
Sértu ekki í stöðu til þess eða vantar hreinlega hraðvirkan Office-pakka fyrir Intel-tölvur skaltu líka skoða ókeypis lausn: NeoOffice. Stafsetning 2009 virkar prýðilega með þeim pakka.
Office 2008 á PowerPC-tölvum
Það er sömuleiðis ekkert sérstaklega góð hugmynd að fara í hina áttina — að nota nýjan og umfangsmikinn hugbúnað eins og Office 2008 á eldri tölvum þar sem hann tekur mið af nýrri tölvubúnaði.






