Bráðnauðsynleg Mac OS X 10.5.7 uppfærsla

Í dag kom út uppfærsla frá Apple fyrir stýrikerfið Mac OS X. Þessi útgáfa er númer 10.5.7 og inniheldur bráðnauðsynlegar lagfæringar fyrir notendur Stafsetningar 2009 sem nota stýrikerfið Mac OS X 10.5 - Leopard.

Upphaflega átti þessi uppfærsla að koma út í apríl en Apple kaus að bæta fjölda lagfæringa við sem og öryggisviðbóta. Þetta er því vafalítið ein umfangsmesta og mikilvægasta uppfærsla sem hefur komið lengi frá Apple og við hvetjum alla til að sækja hana og setja inn. Uppfærslan er engin smásmíði eða allt að 729MB eftir gerð tölvunnar.

Hver er umrædd lagfæring?

Vandinn var sá að þegar skipt var um tungumál yfirlestrar virkaði það ekki og var nauðsynlegt að endurræsa viðkomandi forrit eins og t.d. Mail eða Safari.
Þetta er virkni sem var í lagi í 10.3 og 10.4 en datt út í 10.5 þegar það kom á markað. Þessi vandi hefur nú verið lagfærður og virka tungumálaskiptin nú samstundis eins og vera ber.

Þægileg tungumálaskipti með lyklaborði er einn af lykileiginleikum Stafsetningar 2004 og erum við búin að auka enn frekar við þann möguleika í 2009 útgáfunni en hingað til án árangurs vegna galla í sjálfu stýrikerfinu.
Nú getum við því loksins hafist handa við að klára og prófa þessa nýju og fullkomnari virkni og gefið út Stafsetningu 2009 að því loknu sem ætti að verða mjög fljótlega. Næsta prufuútgáfa kemur út seint annað kvöld.

Hvernig uppfæri ég stýrikerfið?

Þú smellir á Apple merkið efst í vinstra horninu og velur þar „Software Update“.

Þá birtist listi yfir allar uppfærslur sem eru í boði og þú skaltu samþykkja innsetningu þeirra. Athugaðu að tölvan verður endurræst eftir uppfærslu stýrikerfisins.

Senda þessa grein:
  • Facebook
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Mixx
  • Google

Tags: , ,

Comments are closed.