Stór uppfærsla

Stjórnborð 2. júní 2009Það er komin stór uppfærsla á vefinn sem inniheldur talsverðar viðbætur.

Meðal nýjunga er endurskrifað stjórnborð ásamt ítarlegri yfirlestrarreglum (þó svo að stillingarnar séu ekki enn virkar)
Að auki er nú hægt að ráða því algerlega hvaða tungumál eru notuð við yfirlestur og úthluta hverju þeirra flýtihnapp að eigin vali. Þetta er nokkuð sem marga hefur vantað þar sem íslenska og enska eru víst ekki alveg einu tungumálin í heiminum :)

Ennfremur er hægt að ráða því hvaða tungumál er stillt á í upphafi við ræsingu tölvunnar eða eftir innskráningu notanda.

Meðhöndlun eigin orðalista er nú orðin gríðarlega fullkomin og má nefna:

  • Listar fyrir ÖLL tungumál
  • Leit innan lista
  • Hægt að eyða og bæta við að vild
  • Inn- og útflutningur gagna

Tillögur innihalda nú orð af eigin listum sem og Address Book en áður voru þau orð einungis notuð við yfirlesturinn sjálfan. Þær eru merktar nú í fyrstu vegna prófana en við tökum þær merkingar af fljótlega.

Hægt er að læra orð með flýtihnappnum cmd-alt-+ án þess að velja orðið. Nóg er ef innsláttarbendillinn er innan í orðinu. Þetta virkar í TextEdit, Safari, Mail og flestum öðrum en þó ekki enn í Pages.

Örlítið brothætt þó

Það er ansi líklegt að það komi uppfærsla á næstu dögum þar sem margar stillingar eru óvirkar og stjórnborðið er ansi brothætt. Þeir notendur sem eru lenda í því að „SAUIAgent“ dettur út geta ræst það forrit handvirkt en það er staðsett í

/Library/Application Support/Stafsetning

Sem fyrr hvetjum við þá sem ekki hafa uppfært Mac OS X nú þegar í 10.5.7 að gera það með Software Update.

Senda þessa grein:
  • Facebook
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Mixx
  • Google

Comments are closed.