Stafsetning 2009 í Outlook 2011
Þetta er örlítið bráðlát frétt en frétt engu að síður. Stafsetning mun að öllu óbreyttu virka í næstu útgáfu af Outlook á Mac OS X en Microsoft-liðar sitja sveittir við og hafa skrifað nýtt Outlook fyrir Makkann frá grunni.
Vissulega erum við snemma í því en það er þó makalaust hvað rúmt ár er fljótt að líða.
Office 2011 fyrir Mac er sem sagt væntanlegt fyrir lok ársins 2010 og mun innihalda þessa nýju útgáfu af Outlook sem styður kerfislægan yfirlestur Stafsetningar 2010.
Annað áhugavert er endurvakning Visual Basic en margir hafa saknað þess í Office 2008.
Af Office forritunum er nú þegar stuðningur við Stafsetningu í Word, Microsoft Messenger (MSN) og „My Day“ sem er hluti Entourage.






