Uppfærslufréttir

Örstutt um nöfn stýrikerfa hjá Apple áður en lengra er haldið.

  • „Tiger“ er útgáfa 10.4
  • „Leopard“ er útgáfa 10.5
  • „Snow Leopard“ er útgáfa 10.6.

Snow Leopard er það allra nýjasta og er að flestu leyti ein besta uppfærsla sem hefur komið frá ávaxtafyrirtækinu um árabil. Síðustu tvö ár hafa forritarar Apple gert lítið annað en að fínpússa stýrikerfið með hraðaaukningu í huga. Það var í raun vinnureglan — aukinn hraði og bannað að bæta við nýjungum. Að vísu er stýrikerfið ekki laust við nýjungar og er einna markverðastur möguleikinn á tengingu við Microsoft Exchange í Address Book, iCal og Mail sem mun án efa gleðja margan Íslendinginn á Windows-væddum vinnustöðum landsins.
Stýrikerfið er samt það nýtt að það eru örfáir vankantar að koma upp á yfirborðið sem verða slípaðir á næstunni.

Tungumálaskipti

Eins og notendur Snow Leopard hafa tekið eftir hefur ekki verið auðvelt að temja tungumálavalið á yfirlestri. Þetta er vegna breytinga í kerfinu sem og nýjungar sem ætlað er að velja rétta tungumálið.

Til að fá þetta allt í lag ber að varast að velja efsta möguleikann í yfirlestrarglugganum „Automatic by Language“ því stýrikerfið getur ekki greint íslensku á fullnægjandi máta og hætt er við að strikað verði undir flestallan texta.

Snow Leopard notendur verða einnig að setja inn SIMBL hjálpareininguna sem hægt er að sækja hér: SIMBL-0.9.7a.zip

Microsoft Word

Hingað til hefur yfirlestur í Word ekki gengið á Snow Leopard og hann er þessa stundina í örlitlu uppnámi vegna galla í nýja stýrikerfinu. Þó að Apple í Bandaríkjunum hafi viðurkennt vandann eiga þeir enn eftir að staðfesta tímasetningu á lagfæringu.

Í stuttu máli er samskiptalag Word gallað og stýrikerfið er ekki nægjanlega sveigjanlegt til að vinna framhjá því eins og áður í Leopard (Mac OS X 10.5).

Við erum mjög vongóð um að Apple bregðist við þessu hratt og vel þar sem um afturför frá Leopard er um að ræða.

Sækja nýjustu útgáfuna hér.

Senda þessa grein:
  • Facebook
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Mixx
  • Google

Comments are closed.