Hvernig virkar svona yfirlestur?

Stýrikerfið Mac OS X styður svokallaðan kerfislægan yfirlestur en það táknar að hugbúnaðarframleiðendur þurfa ekki að smíða sinn eigin yfirlestur heldur geta þeir látið stýrikerfið sjá um hann.

Orð sem eru álitin rangt stafsett eru undirstrikuð með rauðu. Ef smellt er með hægri músarhnappi eða ctrl-smellt þá birtist listi með tillögum að réttri stafsetningu. Einnig er hægt að hafa lítinn glugga opinn sem birtir tillögurnar jafn óðum.

Þetta táknar að þú getur látið lesa stafsetningu tölvupósts yfir jafn óðum í Mail, spjallið í Adium, Windows Messenger, Skype, iChat eða ritgerðina í Pages, TextEdit, Mellel eða Nisus Writer.

Þar sem Safari vafrinn styður þetta einnig er lítið mál að lesa yfir texta sem sleginn er inn á vefsíður. Þannig má t.a.m. lesa yfir stafsetningu á fréttum og efni sem sent er inn í vefumsjónarkerfi, lesa yfir „blogg“ nú eða texta sem er sendur inn á umræðu- og samskiptavefi eins og t.d. Facebook.

Senda þessa grein:
  • Facebook
  • Digg
  • Sphinn
  • del.icio.us
  • Mixx
  • Google

Comments are closed.