Safn fyrir flokkinn ‘Fréttir og blogg’
Laugardagur 19. desember 2009
Stafsetning 2010 er tilbúin.
Boðið er upp á nokkrar útfærslur:
- Stafsetning 2010 fyrir eina tölvu (nú $99, áður $129)
- Stafsetning 2010 - uppfærsla úr 2004 ($79)
- Stafsetning 2010 fyrir tvær tölvur ($139)
- Stafsetning 2010 fyrir þrjár tölvur ($189)
- Stafsetning 2010 - viðbótarleyfi (aðeins $49)
- Stafsetning 2010 fyrir fagmenn (inniheldur Adobe InDesign tengingu) $199
Nýtt og sveigjanlegt leyfiskerfi gerir notendum kleift að nota sama raðnúmer á fleiri en eina tölvu ef keypt eru viðbótarleyfi.
Um gjaldmiðla og verð
Við höfum lækkað verð frá því sem var áður vegna gengisþróunar. Stafsetning 2004 kostaði $129 en 2010 útgáfan $99. Hún er enn ódýrari fyrir þá sem eiga 2004 útgáfuna fyrir og mun kosta $79.
Panta eintak
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Þriðjudagur 1. desember 2009
Við vorum að setja síðustu þróunarútgáfuna á vefinn fyrir áhugasama (sækja). Útgáfan er ansi nálægt þeirri sem kemur á markað þann 20. desember næstkomandi.
Markverðar nýjungar:
- Tungumálaskipti nú möguleg á valblaði án þess að nota flýtihnappa
- Tungumálaskipti nú möguleg á Snow Leopard (Mac OS X 10.6)
- Word 2008: Yfirlestur er talsvert léttari í keyrslu. Sérstaklega á þetta við um stærri skjöl.
- Word 2008: Innsláttur broddstafa virkar alltaf. (eða allt að því, og ef það klikkar er það ekki okkur að kenna lengur)
- Word 2008: Nú er hægt að slökkva alveg á yfirlestri í stillingum Stafsetningar.
Mikilvægt varðandi Snow Leopard stýrikerfið:
- Tungumálaskipti krefjast innsetningar SIMBL sem má sækja hér. Þetta er smávægileg kerfisviðbót sem gerir forritum kleift að stjórna öðrum forritum.
Endilega settu þessa nýju útgáfu inn ef þú ert nú þegar með eldri útgáfu af Stafsetningu 2009 því sú sem er á tölvunni þinni er runnin út!
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Miðvikudagur 25. nóvember 2009
Einn vandinn eftir uppfærslu í Snow Leopard (Mac OS X 10.6) er að hjálparforrit Stafsetningar fyrir Word getur ekki náð sambandi við Word 2008 og fer því aldrei í gang. Ástæðan liggur bæði í galla í einni Word skrá sem og skort á sveigjanleika Mac OS X 10.6-10.6.2 í slíkum tilvikum. Til fróðleiks þá var þessi sami galli ekki vandamál í Leopard (Mac OS X 10.5).
Apple lagfærði vandann í 10.6.3 og því er lausnin nú að uppfæra stýrikerfið.
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Mánudagur 2. nóvember 2009
Örstutt um nöfn stýrikerfa hjá Apple áður en lengra er haldið.
- „Tiger“ er útgáfa 10.4
- „Leopard“ er útgáfa 10.5
- „Snow Leopard“ er útgáfa 10.6.
Snow Leopard er það allra nýjasta og er að flestu leyti ein besta uppfærsla sem hefur komið frá ávaxtafyrirtækinu um árabil. Síðustu tvö ár hafa forritarar Apple gert lítið annað en að fínpússa stýrikerfið með hraðaaukningu í huga. Það var í raun vinnureglan — aukinn hraði og bannað að bæta við nýjungum. Að vísu er stýrikerfið ekki laust við nýjungar og er einna markverðastur möguleikinn á tengingu við Microsoft Exchange í Address Book, iCal og Mail sem mun án efa gleðja margan Íslendinginn á Windows-væddum vinnustöðum landsins.
Stýrikerfið er samt það nýtt að það eru örfáir vankantar að koma upp á yfirborðið sem verða slípaðir á næstunni.
Tungumálaskipti
Eins og notendur Snow Leopard hafa tekið eftir hefur ekki verið auðvelt að temja tungumálavalið á yfirlestri. Þetta er vegna breytinga í kerfinu sem og nýjungar sem ætlað er að velja rétta tungumálið.
Til að fá þetta allt í lag ber að varast að velja efsta möguleikann í yfirlestrarglugganum „Automatic by Language“ því stýrikerfið getur ekki greint íslensku á fullnægjandi máta og hætt er við að strikað verði undir flestallan texta.
Snow Leopard notendur verða einnig að setja inn SIMBL hjálpareininguna sem hægt er að sækja hér: SIMBL-0.9.7a.zip
Microsoft Word
Hingað til hefur yfirlestur í Word ekki gengið á Snow Leopard og hann er þessa stundina í örlitlu uppnámi vegna galla í nýja stýrikerfinu. Þó að Apple í Bandaríkjunum hafi viðurkennt vandann eiga þeir enn eftir að staðfesta tímasetningu á lagfæringu.
Í stuttu máli er samskiptalag Word gallað og stýrikerfið er ekki nægjanlega sveigjanlegt til að vinna framhjá því eins og áður í Leopard (Mac OS X 10.5).
Við erum mjög vongóð um að Apple bregðist við þessu hratt og vel þar sem um afturför frá Leopard er um að ræða.
Sækja nýjustu útgáfuna hér.
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Þriðjudagur 1. september 2009
Það er komin uppfærð útgáfa á vefinn með innsetningu sem virkar einnig í Snow Leopard (Mac OS X 10.6). Hafa ber í huga að Snow Leopard virkar ekki alveg eins og Leopard (Mac OS X 10.5) þannig að við eigum eftir að uppfæra innsetningarforritið enn frekar. Sem tímabundin lausn er innsetningarforritið frá Apple ræst til að innsetja Snow Leopard viðbæturnar.
Tungumálaskiptingar virka ekki enn í Safari og Mail í Snow Leopard en við vonumst til að leysa úr því fljótlega. Tímabundin lausn er að velja viðkomandi forrit í Finder og velja File > Get Info og haka við “Run in 32-bit mode“.
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Fimmtudagur 13. ágúst 2009
Þetta er örlítið bráðlát frétt en frétt engu að síður. Stafsetning mun að öllu óbreyttu virka í næstu útgáfu af Outlook á Mac OS X en Microsoft-liðar sitja sveittir við og hafa skrifað nýtt Outlook fyrir Makkann frá grunni.
Vissulega erum við snemma í því en það er þó makalaust hvað rúmt ár er fljótt að líða.
Office 2011 fyrir Mac er sem sagt væntanlegt fyrir lok ársins 2010 og mun innihalda þessa nýju útgáfu af Outlook sem styður kerfislægan yfirlestur Stafsetningar 2010.
Annað áhugavert er endurvakning Visual Basic en margir hafa saknað þess í Office 2008.
Af Office forritunum er nú þegar stuðningur við Stafsetningu í Word, Microsoft Messenger (MSN) og „My Day“ sem er hluti Entourage.
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Þriðjudagur 4. ágúst 2009

Nokkrar nýjar táknmyndir úr stjórnborðinu
Jæja loksins loksins. Fimmta „beta“ útgáfan af Stafsetningu 2009 er komin á vefinn. Stjórnborðið verður sífellt glæsilegra og nú er hægt að stilla fjölmarga kosti hugbúnaðarins.
Endilega sækið þessa nýjustu útgáfu og njótið nýjunganna.
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Sunnudagur 2. ágúst 2009
Bloggkerfið á Stafsetning.is er nú orðið samtengt Twitter og Facebook. Ef þú notar þessar síður er ekki úr vegi að fylgjast með okkur með aðstoð þessara kerfa.
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Laugardagur 1. ágúst 2009
Núverandi þróunarútgáfa Stafsetningar er útrunnin og því er nauðsynlegt að stilla á enskan yfirlestur til að losna við „Couldn't Contact Spell Checker“ skilaboð.
Einnig er hægt að sækja innsetningu Stafsetningar og velja „Fjarlægja“ til að taka hugbúnaðinn út tímabundið.
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Miðvikudagur 1. júlí 2009
Endilega uppfærið í nýjustu útgáfuna sem er komin á vefinn.
Stjórnborðið er nú mun stöðugra og fjöldi stillinga hefur verið gerður virkur að nýju. Að auki er nú hægt að ráða því hvort heiti tungumáls er birt við hlið fánans í valblaðaröndinni efst á skjánum.
Minnum aftur góðfúslega á 10.5.7 uppfærsluna frá Apple sem lagfærir tungumálaskipti svo um munar.
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Þriðjudagur 2. júní 2009
Það er komin stór uppfærsla á vefinn sem inniheldur talsverðar viðbætur.
Meðal nýjunga er endurskrifað stjórnborð ásamt ítarlegri yfirlestrarreglum (þó svo að stillingarnar séu ekki enn virkar)
Að auki er nú hægt að ráða því algerlega hvaða tungumál eru notuð við yfirlestur og úthluta hverju þeirra flýtihnapp að eigin vali. Þetta er nokkuð sem marga hefur vantað þar sem íslenska og enska eru víst ekki alveg einu tungumálin í heiminum
Ennfremur er hægt að ráða því hvaða tungumál er stillt á í upphafi við ræsingu tölvunnar eða eftir innskráningu notanda.
Meðhöndlun eigin orðalista er nú orðin gríðarlega fullkomin og má nefna:
- Listar fyrir ÖLL tungumál
- Leit innan lista
- Hægt að eyða og bæta við að vild
- Inn- og útflutningur gagna
Tillögur innihalda nú orð af eigin listum sem og Address Book en áður voru þau orð einungis notuð við yfirlesturinn sjálfan. Þær eru merktar nú í fyrstu vegna prófana en við tökum þær merkingar af fljótlega.
Hægt er að læra orð með flýtihnappnum cmd-alt-+ án þess að velja orðið. Nóg er ef innsláttarbendillinn er innan í orðinu. Þetta virkar í TextEdit, Safari, Mail og flestum öðrum en þó ekki enn í Pages.
Örlítið brothætt þó
Það er ansi líklegt að það komi uppfærsla á næstu dögum þar sem margar stillingar eru óvirkar og stjórnborðið er ansi brothætt. Þeir notendur sem eru lenda í því að „SAUIAgent“ dettur út geta ræst það forrit handvirkt en það er staðsett í
/Library/Application Support/Stafsetning
Sem fyrr hvetjum við þá sem ekki hafa uppfært Mac OS X nú þegar í 10.5.7 að gera það með Software Update.
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Miðvikudagur 13. maí 2009
Í dag kom út uppfærsla frá Apple fyrir stýrikerfið Mac OS X. Þessi útgáfa er númer 10.5.7 og inniheldur bráðnauðsynlegar lagfæringar fyrir notendur Stafsetningar 2009 sem nota stýrikerfið Mac OS X 10.5 - Leopard.
Upphaflega átti þessi uppfærsla að koma út í apríl en Apple kaus að bæta fjölda lagfæringa við sem og öryggisviðbóta. Þetta er því vafalítið ein umfangsmesta og mikilvægasta uppfærsla sem hefur komið lengi frá Apple og við hvetjum alla til að sækja hana og setja inn. Uppfærslan er engin smásmíði eða allt að 729MB eftir gerð tölvunnar.
Hver er umrædd lagfæring?
Vandinn var sá að þegar skipt var um tungumál yfirlestrar virkaði það ekki og var nauðsynlegt að endurræsa viðkomandi forrit eins og t.d. Mail eða Safari.
Þetta er virkni sem var í lagi í 10.3 og 10.4 en datt út í 10.5 þegar það kom á markað. Þessi vandi hefur nú verið lagfærður og virka tungumálaskiptin nú samstundis eins og vera ber.
Þægileg tungumálaskipti með lyklaborði er einn af lykileiginleikum Stafsetningar 2004 og erum við búin að auka enn frekar við þann möguleika í 2009 útgáfunni en hingað til án árangurs vegna galla í sjálfu stýrikerfinu.
Nú getum við því loksins hafist handa við að klára og prófa þessa nýju og fullkomnari virkni og gefið út Stafsetningu 2009 að því loknu sem ætti að verða mjög fljótlega. Næsta prufuútgáfa kemur út seint annað kvöld.
Hvernig uppfæri ég stýrikerfið?
Þú smellir á Apple merkið efst í vinstra horninu og velur þar „Software Update“.
Þá birtist listi yfir allar uppfærslur sem eru í boði og þú skaltu samþykkja innsetningu þeirra. Athugaðu að tölvan verður endurræst eftir uppfærslu stýrikerfisins.
Tags: 10.5.7, Mac OS X, tungumál
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Laugardagur 4. apríl 2009
Gleðifréttir fyrir þá hönnuði sem eru með nýjustu CS4 forritin frá Adobe.
Hér er ný prufuútgáfa af Stafsetningu 2009 fyrir Adobe InCopy og InDesign CS4:
Sækja
Sem fyrr þarf Stafsetning 2009 að vera til staðar á tölvunni. Þó Adobe tengingin sé aðskilin vara þarf hún á hinni að halda.
Tags: Adobe, CS3, CS4, InCopy, InDesign
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 1. apríl 2009
Það er alltaf gaman að tilkynna stórkostlega hluti 1. apríl. Það trúir manni enginn...

InDesign CS3 tenging
Stóru fréttirnar eru auðvitað þær sem varða InDesign tenginguna sem er nú komin inn til prufu og verður hluti af sérstakri útgáfu fyrir fagmenn.
Word-tengingin
Hún er þó enn örlítið óstöðug en við ættum að ná að temja hana á næstunni.
Getur nú slitið í sundur orð
Þetta er afar gagnlegt ef gleymist að slá inn bil á milli orða. Þá er tillagan fyrir „tilprufu“ „til prufu“. Alveg einstaklega hentugt í Pages með sjálfvirkum leiðréttingum.
Sjálfvirkar leiðréttingar í nýjustu útgáfu Pages (ritvinnslunni í iWork).
Ef það er bara ein tillaga er hægt að nota hana sjálfvirkt. Leiðbeiningar hér.
NeoOffice 3.0 samhæfni
Örlitlar lagfæringar hér til að tryggja fulla virkni með nýja NeoOffice sem kom út í gær.
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Miðvikudagur 1. apríl 2009
Nú er hægt að nota Stafsetningu 2009 og Pages '09 saman á snjallan hátt.
Innslátt má leiðrétta jafnóðum.
Til að gera þennan möguleika virkan skaltu velja:

Pages > Preferences > Auto-Correction
Hakaðu við:

Automatically use spell-checker corrections.
Og lokaðu stillingaglugganum.
Tags: iwork pages
Posted in Apple iWork Pages, Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Þriðjudagur 31. mars 2009
Nú verður prentvillupúkanum útrýmt!
Stafsetning 2009 fyrir sjálft Adobe InDesign CS3 er tilbúin en þó með þeim fyrirvara að viðbótin krefst þess að Stafsetning 2009 (frá 1. apríl eða nýrri) sé til staðar þannig að forútgáfa af þeim frábæra hugbúnaði þarf að vera til staðar á tölvunni.
Ætlunin er að bjóða tvær útgáfur af Stafsetningu 2009. Hefðbundna og fullkomnari útgáfu fyrir fagfólk sem notar umbrotsforrit sem þessi.
Ef þú ert einn þeirra sem hafa ekki hugmynd um hvað í ósköpunum þetta InDesign er þá er það sem sagt forritið sem allflestar bækur, bæklingar, dagblöð og tímarit eru sett upp í áður en þau eru send í prentun. Þannig að það er aldrei að vita að þetta framlag okkar fækki villum í næsta DV, Mogga eða Fréttablaði
InDesign CS4 notendur þurfa ekki að örvænta — við erum að vinna í þeirri útgáfu og hún kemur vonandi á næstu dögum.
Sækja hér (0,6MB): Stafsetning 2009 fyrir InDesign CS3
Tags: CS3, CS4, InDesign
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Fimmtudagur 5. febrúar 2009
Það er hægt að fá fréttaþjónustu frá þessum vef beint inn í Mail á Mac OS X 10.5 (Leopard)
Veldu „Add RSS Feeds...“ af valblaðinu „File“.
Límdu inn „feed://www.stafsetning.is/efni/feed/“ og hakaðu við „Show in inbox“ og smelltu á „Add“ hnappinn.
Svo einfalt er það nú.
Þessa tækni má að sjálfsögðu nota til að fá fréttir af öðrum vefsíðum beint inn í pósthólfið.

Posted in Almennt, Fréttir og blogg | No Comments »
Sunnudagur 1. febrúar 2009
Ný útgáfa var að fara í loftið rétt í þessu og inniheldur hún helst nýjungar í Word-tengingunni sem ræður nú við yfirlestur við innslátt og getur birt tillögur í mjög þægilegum, fljótandi glugga.
Þetta er enn á vinnslustigi þannig að það má búast við einhverjum hrekkjum í Word en annar yfirlestur virkar prýðilega.
Hér er uppkast leiðbeininga fyrir notkun í Word 2008 og ekki veitir af:
Um yfirlestur í Word 2008
Posted in Fréttir og blogg, Leiðbeiningar, Microsoft Word 2008, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 21. janúar 2009
Þessa dagana erum við að slípa Word-tenginguna enn frekar til m.t.t. hraðaaukningar og að auki er nú undirstrikun við innslátt nær tilbúin.
Stórglæsilegur tillögulisti birtist nú ef smellt er á eða rangt orð í Word þannig að hægt er að framkvæma leiðréttingar án þess að yfirlestrarglugginn sé opinn.
Þessar lagfæringar og viðbætur verða hluti af næstu uppfærslu sem er væntanleg eftir um viku.
Tags: Microsoft Word 2004, Microsoft Word 2008
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Laugardagur 6. desember 2008
Nú stendur yfir þróun á einum af nokkrum nýjum möguleikum ásamt flutningi á stillingum úr System Preferences yfir í sjálfstætt forrit þar sem það er einfaldlega orðið full þröngt um hlutina í System Preferences.
Orðagreining hefur verið endurbætt og öllum yfirlestri hraðað umtalsvert.
Þar sem um stórar breytingar er að ræða verður ekki gefin út uppfærsla fyrr en eftir nokkra daga.
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Fimmtudagur 27. nóvember 2008
Örstuttar fréttir af framvindu mála.
Nú hefur Word-viðbótin verið færð í vel ásættanlegt form og einungis smávægilegar viðbætur væntanlegar á þeim vettvangi.
Nú stendur yfir þróun á nýju skráningarkerfi sem hefur tvo frábæra kosti fram yfir það gamla:
- Skráning leyfa til reynslu
- Fjölnotendaleyfi með sama raðnúmeri
Fjölnotendaleyfi verða sem sagt vel möguleg í 2009 útgáfunni og munu henta fyrirtækjum og stofnunum vel. Kerfisstjórar munu geta fengið skýrslu um notkun leyfa og þurfa nú ekki að halda utan um stök raðnúmer.
Þeir sem vilja prófa hugbúnaðinn munu eiga þess kost að sækja mánaðarleyfi til reynslu og geta gert upp hug sinn að þeim tíma loknum hvort þeir vilji fjárfesta í þessu gagnlega hjálpartæki (sem þeir munu auðvitað gera)
Sendi svo hér inn mynd að gamni af skrifborðinu þar sem þetta gerist allt saman. Eins og sést er aðal þróunartölvan ný iMac 24" sem er líklega ein besta tölva sem Apple hefur framleitt. Aðrar tölvur til prufu eru iMac G5 með 10.4.11, PowerBook 12" með 10.5 og þær sem sjást ekki eru Mac mini PowerPC með 10.4 ásamt MacBook Intel með 10.5.
Það er jú grundvallaratriði við hugbúnaðarþróun að prófa annað en það allra nýjasta og besta!

Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Mánudagur 24. nóvember 2008
Meðal helstu nýjunga í þessari útgáfu er verulega endurbættur yfirlestur í Word. Nú birtast einfaldir hnappar efst á skjánum þegar Word er ræst með helstu aðgerðum yfirlestrar.
Word 2004 bætist í hópinn
Þeir voru þónokkrir sem höfðu samband til að lýsa yfir áhuga á því að fá þessa virkni í 2004 útgáfuna af Word og það er einstaklega ánægjulegt að skýra frá því að nýjasta útgáfan virkar einnig í Word 2004.
Yfirlestrarglugginn

Hér sést svo sjálfur yfirlestrarglugginn þar sem það er nú leikur einn að renna yfir skjöl og framkvæma leiðréttingar. Það sem meira er inniheldur glugginn nú flýtihnappa þannig að það er hægt að framkvæma allar aðgerðir án þess að nota músina!
Prófaðu strax í dag
Drífðu þig inn á stafsetning.is/2009 og nældu þér í þessa endurbættu útgáfu.
Tags: Microsoft Word 2004, Microsoft Word 2008
Posted in Fréttir og blogg, Microsoft Word 2004, Microsoft Word 2008, Notkun í ýmsum forritum, Stafsetning 2010 | No Comments »
Fimmtudagur 20. nóvember 2008
Hér eru leiðbeiningar fyrir þá sem vilja sækja NeoOffice skrifstofuhugbúnaðinn en Stafsetning 2009 vinnur með innbyggða yfirlestrinum í þessum gagnlega hugbúnaði.
Náðu í hugbúnaðinn
Þar velurðu annað hvort PowerPC eða Intel útgáfuna eftir því hvaða örgjörvi er í tölvunni.
Reglan er sú að ef tölvan heitir Power Mac, PowerBook eða iBook þá er hún með PowerPC örgjörva, annars Intel.
Mac mini og iMac eru erfiðari en þá þarftu að velja Apple->About this Mac og skoða örgjörvagerðina þar. (e. Processor)

Þegar þú hefur valið hvaðan þú vilt sækja eintak birtist framvinda niðurhals í Safari (eða hvaða vafra sem er í raun).
Uppsetning
Þegar vafrinn þinn hefur sótt eintakið birtist gluggi í Finder (Blái broskarlinn sem þú getur valið neðst á skjánum í Dock).
Í þessum glugga er innsetningarforrit NeoOffice og ber nafn svipað NeoOffice-2.2.5-Intel.pkg.
Þú skalt tvísmella á þennan innsetningarpakka og þá fer forritið Installer í gang og leiðir þig í gegn um innsetninguna.
Í því ferli verður óskað eftir aðgangsorði umsjónarmanns tölvunnar. Þetta er bara aðgangsorðið sem þú valdir þegar þú settir tölvuna upp í fyrsta skiptið.
Eftir innsetningu er hægt að nálgast NeoOffice skrifstofuhugbúnaðinn í möppunni Applications á harða disknum.
Tags: NeoOffice
Posted in Fréttir og blogg | No Comments »
Miðvikudagur 19. nóvember 2008

Það átta sig væntanlega fæstir á því hvað það er mikil vinna á bakvið ýmsar prófanir og nauðsynlega gagnasöfnun sem tengist því að þróa hugbúnað eins og Stafsetningu 2009.
Mig langar því að varpa örlitlu ljósi á eitt þeirra forrita sem eru notuð við uppfærslu gagnasafns Stafsetningar til að tryggja að málfar og orð úr fréttaflutningi séu sannarlega staðfest af hugbúnaðinum.
Forritið „Fréttayfirlestur Stafsetningar“ er mjög merkilegt forrit. Ekki aðeins getur það lesið yfir allar nýjustu greinar og bloggfærslur á Íslandi heldur safnar það saman óþekktum orðum sem farið er handvirkt í að samþykkja - nú eða ekki - í orðasafn Stafsetningar.
Skjámynd sýnir virkni hugbúnaðarins sem hefur annars reynst mjög vel við að fylgjast með fréttum í kreppunni!
Þannig þekkir Stafsetning 2009 Obama, McCain og Peningamarkaðssjóð 9

Fréttayfirlestur Stafsetningar
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 19. nóvember 2008
Sagan á bakvið nýja innsetningarforrit Stafsetningar 2009 er kannski áhugaverð fyrir suma. Sérstaklega því ég er sannfærður um að það er ekki til fallegra innsetningarforrit í bransanum.
Ég er almennt þeirrar skoðunar að innsetningarforrit séu of of flókin fyrir venjulegt fólk. Ekki það að það sé slæmt að vera „venjulegt fólk“ heldur þvert á móti. Svo má alltaf láta hlutina líta betur út.
Það var því hér í miðju lungnabólgufári með 40° hita sem ég réðst í að bæta ástandið með því að henda innsetningarforriti Apple og skrifa nýtt því einungis þannig gæti ég uppfyllt óskir mínar um fullkomna upplifun innsetningar fyrir „venjulegt fólks“ og fagurkera.
Skoðum upphafsmyndina:

Þetta er auðvitað nett bilun, en svartir, glansandi hnappar eru bara svooo fallegir.
Aðgangsorð/lykilorð
Það er alveg merkilegt hvað Íslendingar (og væntanlega aðrir líka) eru slappir við að muna aðgangsorð þannig að það þurfti alveg sérstaklega að útskýra hvað það var o.s.frv. ásamt því að taka tillit til þeirra sem nota hreinlega ekkert aðgangsorð (skuggalega algengt).
Tölva er ekki bara tölva
Veit nú ekki alveg nákvæmlega hvað veldur en svo virðist sem Mac-notendur tengist persónulegum böndum við tölvurnar sínar. Þá þýðir væntanlega ekkert að birta mynd af rangri tölvu við innsetningu eða hvað?
Skoðum innsetningu á hvítri 24-tommu iMac:

Mikið rétt - það birtist mynd af tölvunni.
Skoðum að gamni innsetningu á Mac mini með Apple Cinema skjá:

Þetta er auðvitað hlutur sem notendur munu ekki taka eftir því þeim mun finnast svo eðlilegt að sjá tölvuna sína fyrir framan sig.
Það er fullt af svona litlum hlutum í nýja innsetningarforritinu en mesti töffaraskapurinn er án efa fólginn í hreyfingunum sem eru notaðar á milli mismunandi stiga innsetningar.
Eins og með allt svona er sjón sögu ríkari þannig að þú skalt bara sækja hugbúnaðinn og prófa!
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 19. nóvember 2008
Jæja loksins fá notendur Stafsetningar 2004 nýju forútgáfuna í hendurnar. Það eru ómældar vinnustundir á bakvið þennan merka áfanga enda má segja að Stafsetning hafi verið skrifuð frá grunni fyrir þessa stóru uppfærslu. Það er mér því sönn ánægja að tilkynna að næsta stóra uppfærsla Stafsetningar er að verða tilbúin eftir umfangsmiklar endurbætur og þú getur fengið að prófa hana strax í dag.
Þessi uppfærsla verður ókeypis fyrir þá sem keyptu leyfi fyrir Stafsetningu 2004 eftir 1. janúar 2008 en aðrir eigendur munu njóta uppfærsluafsláttar.
Kostar ekkert að prófa
Góðu fréttirnar eru auðvitað að það kostar ekkert að prófa! Þú bara ferð á stafsetning.is/2009 og sækir eintak.
Öll raðnúmer Stafsetningar 2004 er hægt að nota til að setja inn þessa forútgáfu tímabundið — jafnvel þó búið sé að nota það á annarri tölvu.
Nýjungar eru meðal annarra:
• Leopard-samhæfni
• Intel-samhæfni
• Stóraukinn ræsihraði sem flýtir fyrir ræsingu tölvunnar
• Uppfærslukerfi
• Growl-stuðningur
• Fjölnotendastuðningur fyrir „Fast user switching“ og notendur með heimasvæði á Mac OS X Server
• Nýtt og einfalt innsetningarforrit
• Hægt að fjarlægja Stafsetningu af tölvum á einfaldan hátt (og síðar meir flytja leyfið þegar þú skiptir um tölvu)
• Forgangsraðaðar leiðréttingartillögur
• Bætt greining orða
• NeoOffice tenging
• OpenOffice tenging
• Word 2008 tenging
Meira á leiðinni
Það skal tekið fram að fjöldi nýjunga er enn í vinnslu og er væntanlegur í næstu forútgáfum. Það er til dæmis ekki einfalt að fá tillögur inn í Word 2008 en það stendur til bóta á næstu dögum. Endurbótum og nýjungum verður bætt við smám saman næstu vikurnar með uppfærslukerfi Stafsetningar 2009.
Lokaútgáfa hugbúnaðarins er síðan áætluð á markað í desember.
Þér er ekkert að vanbúnaði. Skelltu þér inn á stafsetning.is og náðu í sjóðheitt eintak af Stafsetningu 2009. Taktu þátt í að prófa framtíðina og láttu okkur vita hvað þér finnst með því að senda okkur tölvupóst á fyrirspurnir -hjá- stafsetning.is.
Tags: forútgáfa
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »