Listi yfir mögulegar endingar

Miðvikudagur 25. nóvember 2009

Í þeim forritum sem styðja kerfislægan yfirlestur er hægt að fá lista yfir mögulegar endingar ef skrifaðir hafa verið þrír stafir eða fleiri.

Þá er til dæmis hægt skrifa „stað“ og ýta á F5 (eða alt-esc) til að fá eftirfarandi lista:

completion

Þá má nota örvarhnappana á hnappaborðinu til að velja orð og þá vendihnappinn til að staðfesta það.

Ef sérstök orð finnast með sömu upphafsstöfum innan þess skjals sem þú ert að vinna í hverju sinni er þeim skilað sem fyrstu tillögum.

Hvernig virkar svona yfirlestur?

Miðvikudagur 25. nóvember 2009

Stýrikerfið Mac OS X styður svokallaðan kerfislægan yfirlestur en það táknar að hugbúnaðarframleiðendur þurfa ekki að smíða sinn eigin yfirlestur heldur geta þeir látið stýrikerfið sjá um hann.

Orð sem eru álitin rangt stafsett eru undirstrikuð með rauðu. Ef smellt er með hægri músarhnappi eða ctrl-smellt þá birtist listi með tillögum að réttri stafsetningu. Einnig er hægt að hafa lítinn glugga opinn sem birtir tillögurnar jafn óðum.

Þetta táknar að þú getur látið lesa stafsetningu tölvupósts yfir jafn óðum í Mail, spjallið í Adium, Windows Messenger, Skype, iChat eða ritgerðina í Pages, TextEdit, Mellel eða Nisus Writer.

Þar sem Safari vafrinn styður þetta einnig er lítið mál að lesa yfir texta sem sleginn er inn á vefsíður. Þannig má t.a.m. lesa yfir stafsetningu á fréttum og efni sem sent er inn í vefumsjónarkerfi, lesa yfir „blogg“ nú eða texta sem er sendur inn á umræðu- og samskiptavefi eins og t.d. Facebook.

Bættu fréttum af Stafsetning.is inn í Mail

Fimmtudagur 5. febrúar 2009

Það er hægt að fá fréttaþjónustu frá þessum vef beint inn í Mail á Mac OS X 10.5 (Leopard)

Veldu „Add RSS Feeds...“ af valblaðinu „File“.

Límdu inn „feed://www.stafsetning.is/efni/feed/“ og hakaðu við „Show in inbox“ og smelltu á „Add“ hnappinn.

Svo einfalt er það  nú.

Þessa tækni má að sjálfsögðu nota til að fá fréttir af öðrum vefsíðum beint inn í pósthólfið.

rss í Mail

Couldn’t Contact Spell Checker?

Miðvikudagur 4. febrúar 2009

Villan „Couldn't Contact Spell Checker“ birtist þegar stýrikerfið nær ekki sambandi við yfirlesrarviðbót sem er skráð fyrir tilteknu tungumáli.

Þetta getur gerst ef hluti Stafsetningar er fjarlægður, eða hjá þeim sem hafa prófað forútgáfur sem hafa tímabundinn líftíma.

Til að losna við villuna er best að setja inn nýjustu útgáfu Stafsetningar 2009.