Leiðbeiningar um notkun í Microsoft Word

Fimmtudagur 29. júlí 2010

Hér er að finna PDF-skjal með leiðbeiningum um notkun í Microsoft Word 2004 og 2008.

Sækja

Word-tenging uppfærð

Föstudagur 23. júlí 2010

Galli fannst í Word-tengingunni sem kom fram við yfirlestur skjala sem innihalda tengla eða tilvitnanir. Vandinn lýsir sér þannig að hjálparforritið frýs og ekki er auðvelt að hætta í því.

Gallinn hefur nú verið lagfærður og því er mælt með uppfærslu ekki seinna en strax. Lagfæringin hefur einnig önnur jákvæð áhrif á yfirlestur stærri skjala.

Uppfærsla ætti að vera í boði sjálfkrafa við næstu ræsingu Word. Ef ekki má velja „Athuga með uppfærslu“ af valblaði Stafsetningar í Word.

Er Word 2008 óstöðugt á 10.6.3 eða nýrra?

Þriðjudagur 1. júní 2010

Til að nota Word með Stafsetningu á Snow Leopard (Mac OS X 10.6.0-10.6.2) þurfti tímabundna breytingu sem er nú óþörf.

Það er jafnframt mikilvægt að fjarlægja hana svo Word verði ekki óstöðugt.
Sækja lagfæringu

There is a problem with the Office database

Miðvikudagur 25. nóvember 2009

Eftir uppfærslu í Snow Leopard (Mac OS X 10.6) geta notendur Microsoft Word 2008 séð eftirfarandi villu þar sem stendur „There is a problem with the office database“.

WordDatabaseProblem

Þessi villa hefur í raun ekkert með Stafsetningu að gera en hún merkir þó að upp er kominn vandi eftir uppfærslu stýrikerfisins sem þarf að lagfæra þar sem vandinn hefur áhrif á yfirlestur. Án lagfæringar getur Word ekki skilað réttu tungumáli skjals til Stafsetningar.

Einfaldast er að henda möppunni „Microsoft“ úr stillingamöppu notandans.

Dæmi um slóð væri

/Users/[nafnið þitt]/Library/Preferences/Microsoft

Nóg er að:

1. Hætta í Word

2. Draga þessa möppu í ruslið

3. Ræsa Word

Microsoft Office 2004 eða 2008 á mína tölvu?

Fimmtudagur 5. febrúar 2009

Word 2008Þegar 2004 útgáfan af Microsoft Office kom út voru allar Apple-tölvur með örgjörva af PowerPC-gerð.

Apple skipti hinsvegar um örgjörvagerð árið 2006 og fór að nota örgjörva frá Intel.

Nú notar Mac OS X sérstaka þýðingarvél sem tryggir mögulega notkun hugbúnaðar sem var þróaður fyrir þessa eldri gerð örgjörva. Sá galli er þó á gjöf Njarðar, að afköst hugbúnaðarins eru ekki þau sömu og eins er minnisnotkun talsvert meiri sem hægir aftur á öðrum hlutum tölvunnar.

Því mælum við ekki með því að Office 2004 sé notaður á nýrri tölvum sem eru með Intel-örgjörva þar sem Office-pakkinn frá Microsoft var frekar þungur í keyrslu fyrir.

Uppfært í Office 2008

Office 2008 er því mun betri kostur fyrir nýrri tölvur (s.s. MacBook, MacBook Pro, Mac Pro og iMac eða Mac mini síðan janúar 2006).

Fjölmargar stofnanir og fyrirtæki eru með stórnotendasamninga við Microsoft á Íslandi og geta í krafti þessarra heildarsamninga útvegað Mac Office 2008 með mjög litlum tilkostnaði. Ef þú starfar á slíkum stað skaltu spyrja kerfisstjórann þinn um málið og biðja hann um að panta diskasett frá Microsoft með þessari nýjustu útgáfu.

Sértu ekki í stöðu til þess eða vantar hreinlega hraðvirkan Office-pakka fyrir Intel-tölvur skaltu líka skoða ókeypis lausn: NeoOffice. Stafsetning 2009 virkar prýðilega með þeim pakka.

Office 2008 á PowerPC-tölvum

Það er sömuleiðis ekkert sérstaklega góð hugmynd að fara í hina áttina — að nota nýjan og umfangsmikinn hugbúnað eins og Office 2008 á eldri tölvum þar sem  hann tekur mið af nýrri tölvubúnaði.

Ný forútgáfa 1. febrúar

Sunnudagur 1. febrúar 2009

Ný útgáfa var að fara í loftið rétt í þessu og inniheldur hún helst nýjungar í Word-tengingunni sem ræður nú við yfirlestur við innslátt og getur birt tillögur í mjög þægilegum, fljótandi glugga.

Þetta er enn á vinnslustigi þannig að það má búast við einhverjum hrekkjum í Word en annar yfirlestur virkar prýðilega. 

Hér er uppkast leiðbeininga fyrir notkun í Word 2008 og ekki veitir af:
Um yfirlestur í Word 2008

Að gera Word tengingu virka – eða óvirka

Mánudagur 24. nóvember 2008

Word-tengingin er ræst sjálfkrafa ef Microsoft Word 2004 eða 2008 er ræst.

Þá birtast hnappar efst á skjánum sem hægt er að nota til að framkvæma yfirlestur.

Ef þeir birtast ekki skaltu framkvæma eftirfarandi:

Hættu í Word. (Word > Quit Word)

Veldu Apple > System Preferences

Smelltu á „Stafsetning“ sem er neðst undir „Other“.

Stillingaspjald Stafsetningar birtist þá og þar skaltu smella á Word-flipann.

Þar skaltu haka við birtingu hnapparandar.

Nú skaltu ræsa Word 2004 eða 2008.

Þá ættu hnapparnir að birtast efst á skjánum.

picture-36

Ef þeir gera það ekki (sumir hafa lent í því við prófanir) geturðu ræst hjálparforritið handvirkt en það er staðsett í möppunni Diskur > Library > Application Support > Stafsetning: og heitir „Stafsetning fyrir Word 2008“. Tvísmelltu bara á það forrit (þú getur dregið það í forritaröndina Dock neðst á skjánum til að ræsa það þaðan á einfaldan hátt.

Ný forútgáfa af Stafsetningu 2009 er tilbúin

Mánudagur 24. nóvember 2008

Meðal helstu nýjunga í þessari útgáfu er verulega endurbættur yfirlestur í Word. Nú birtast einfaldir hnappar efst á skjánum þegar Word er ræst með helstu aðgerðum yfirlestrar.

Word 2004 bætist í hópinn

Þeir voru þónokkrir sem höfðu samband til að lýsa yfir áhuga á því að fá þessa virkni í 2004 útgáfuna af Word og það er einstaklega ánægjulegt að skýra frá því að nýjasta útgáfan virkar einnig í Word 2004.

Yfirlestrarglugginn

Hér sést svo sjálfur yfirlestrarglugginn þar sem það er nú leikur einn að renna yfir skjöl og framkvæma leiðréttingar. Það sem meira er inniheldur glugginn nú flýtihnappa þannig að það er hægt að framkvæma allar aðgerðir án þess að nota músina!

Prófaðu strax í dag

Drífðu þig inn á stafsetning.is/2009 og nældu þér í þessa endurbættu útgáfu.