Safn fyrir flokkinn ‘Stafsetning 2010’
Þriðjudagur 1. nóvember 2011
Ný útgáfa Word-tengingar er komin út. Tilgangur uppfærslu er að leiðrétta vandamál í Word 2011 sem lýsti sér þannig að í stað rauðra undirstrika í texta birtust svört.
Uppfærsla birtist sjálfkrafa innan sólarhrings en ef þú vilt uppfæra samstundis geturðu valið „Athuga með uppfærslu“ inni í Word undir annað hvort „W“ merkinu eða tannhjólinu á hnapparöndinni sem Stafsetning setur inn.
Posted in Stafsetning 2010 | No Comments »
Fimmtudagur 29. júlí 2010
Hér er að finna PDF-skjal með leiðbeiningum um notkun í Microsoft Word 2004 og 2008.
Sækja
Posted in Leiðbeiningar, Microsoft Word 2004, Microsoft Word 2008, Stafsetning 2010 | No Comments »
Föstudagur 23. júlí 2010
Galli fannst í Word-tengingunni sem kom fram við yfirlestur skjala sem innihalda tengla eða tilvitnanir. Vandinn lýsir sér þannig að hjálparforritið frýs og ekki er auðvelt að hætta í því.
Gallinn hefur nú verið lagfærður og því er mælt með uppfærslu ekki seinna en strax. Lagfæringin hefur einnig önnur jákvæð áhrif á yfirlestur stærri skjala.
Uppfærsla ætti að vera í boði sjálfkrafa við næstu ræsingu Word. Ef ekki má velja „Athuga með uppfærslu“ af valblaði Stafsetningar í Word.
Posted in Microsoft Word 2004, Microsoft Word 2008, Stafsetning 2010 | No Comments »
Þriðjudagur 8. desember 2009
Ef „Íslenska (Stafsetning)“ birtist ekki sem möguleiki í Snow Leopard (Mac OS X 10.6) þarf að eyða eftirfarandi skrá og velja Log Out undir Apple-merkinu efst vinstra megin á skjánum:
~/Library/Caches/com.apple.nsservicescache.plist
Dæmi um staðsetningu
Macintosh HD > Users > Anna > Library > Caches > com.apple.nsservicescache.plist
Skráin er einfaldlega dregin í ruslakörfuna neðst á skjánum og útskráning framkvæmd að því loknu.
Posted in Snow Leopard - Mac OS X 10.6, Stafsetning 2010 | No Comments »
Þriðjudagur 1. september 2009
Það er komin uppfærð útgáfa á vefinn með innsetningu sem virkar einnig í Snow Leopard (Mac OS X 10.6). Hafa ber í huga að Snow Leopard virkar ekki alveg eins og Leopard (Mac OS X 10.5) þannig að við eigum eftir að uppfæra innsetningarforritið enn frekar. Sem tímabundin lausn er innsetningarforritið frá Apple ræst til að innsetja Snow Leopard viðbæturnar.
Tungumálaskiptingar virka ekki enn í Safari og Mail í Snow Leopard en við vonumst til að leysa úr því fljótlega. Tímabundin lausn er að velja viðkomandi forrit í Finder og velja File > Get Info og haka við “Run in 32-bit mode“.
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 1. júlí 2009
Endilega uppfærið í nýjustu útgáfuna sem er komin á vefinn.
Stjórnborðið er nú mun stöðugra og fjöldi stillinga hefur verið gerður virkur að nýju. Að auki er nú hægt að ráða því hvort heiti tungumáls er birt við hlið fánans í valblaðaröndinni efst á skjánum.
Minnum aftur góðfúslega á 10.5.7 uppfærsluna frá Apple sem lagfærir tungumálaskipti svo um munar.
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 13. maí 2009
Í dag kom út uppfærsla frá Apple fyrir stýrikerfið Mac OS X. Þessi útgáfa er númer 10.5.7 og inniheldur bráðnauðsynlegar lagfæringar fyrir notendur Stafsetningar 2009 sem nota stýrikerfið Mac OS X 10.5 - Leopard.
Upphaflega átti þessi uppfærsla að koma út í apríl en Apple kaus að bæta fjölda lagfæringa við sem og öryggisviðbóta. Þetta er því vafalítið ein umfangsmesta og mikilvægasta uppfærsla sem hefur komið lengi frá Apple og við hvetjum alla til að sækja hana og setja inn. Uppfærslan er engin smásmíði eða allt að 729MB eftir gerð tölvunnar.
Hver er umrædd lagfæring?
Vandinn var sá að þegar skipt var um tungumál yfirlestrar virkaði það ekki og var nauðsynlegt að endurræsa viðkomandi forrit eins og t.d. Mail eða Safari.
Þetta er virkni sem var í lagi í 10.3 og 10.4 en datt út í 10.5 þegar það kom á markað. Þessi vandi hefur nú verið lagfærður og virka tungumálaskiptin nú samstundis eins og vera ber.
Þægileg tungumálaskipti með lyklaborði er einn af lykileiginleikum Stafsetningar 2004 og erum við búin að auka enn frekar við þann möguleika í 2009 útgáfunni en hingað til án árangurs vegna galla í sjálfu stýrikerfinu.
Nú getum við því loksins hafist handa við að klára og prófa þessa nýju og fullkomnari virkni og gefið út Stafsetningu 2009 að því loknu sem ætti að verða mjög fljótlega. Næsta prufuútgáfa kemur út seint annað kvöld.
Hvernig uppfæri ég stýrikerfið?
Þú smellir á Apple merkið efst í vinstra horninu og velur þar „Software Update“.
Þá birtist listi yfir allar uppfærslur sem eru í boði og þú skaltu samþykkja innsetningu þeirra. Athugaðu að tölvan verður endurræst eftir uppfærslu stýrikerfisins.
Tags: 10.5.7, Mac OS X, tungumál
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Laugardagur 4. apríl 2009
Gleðifréttir fyrir þá hönnuði sem eru með nýjustu CS4 forritin frá Adobe.
Hér er ný prufuútgáfa af Stafsetningu 2009 fyrir Adobe InCopy og InDesign CS4:
Sækja
Sem fyrr þarf Stafsetning 2009 að vera til staðar á tölvunni. Þó Adobe tengingin sé aðskilin vara þarf hún á hinni að halda.
Tags: Adobe, CS3, CS4, InCopy, InDesign
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 1. apríl 2009
Nú er hægt að nota Stafsetningu 2009 og Pages '09 saman á snjallan hátt.
Innslátt má leiðrétta jafnóðum.
Til að gera þennan möguleika virkan skaltu velja:

Pages > Preferences > Auto-Correction
Hakaðu við:

Automatically use spell-checker corrections.
Og lokaðu stillingaglugganum.
Tags: iwork pages
Posted in Apple iWork Pages, Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Þriðjudagur 31. mars 2009
Nú verður prentvillupúkanum útrýmt!
Stafsetning 2009 fyrir sjálft Adobe InDesign CS3 er tilbúin en þó með þeim fyrirvara að viðbótin krefst þess að Stafsetning 2009 (frá 1. apríl eða nýrri) sé til staðar þannig að forútgáfa af þeim frábæra hugbúnaði þarf að vera til staðar á tölvunni.
Ætlunin er að bjóða tvær útgáfur af Stafsetningu 2009. Hefðbundna og fullkomnari útgáfu fyrir fagfólk sem notar umbrotsforrit sem þessi.
Ef þú ert einn þeirra sem hafa ekki hugmynd um hvað í ósköpunum þetta InDesign er þá er það sem sagt forritið sem allflestar bækur, bæklingar, dagblöð og tímarit eru sett upp í áður en þau eru send í prentun. Þannig að það er aldrei að vita að þetta framlag okkar fækki villum í næsta DV, Mogga eða Fréttablaði
InDesign CS4 notendur þurfa ekki að örvænta — við erum að vinna í þeirri útgáfu og hún kemur vonandi á næstu dögum.
Sækja hér (0,6MB): Stafsetning 2009 fyrir InDesign CS3
Tags: CS3, CS4, InDesign
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Sunnudagur 1. febrúar 2009
Ný útgáfa var að fara í loftið rétt í þessu og inniheldur hún helst nýjungar í Word-tengingunni sem ræður nú við yfirlestur við innslátt og getur birt tillögur í mjög þægilegum, fljótandi glugga.
Þetta er enn á vinnslustigi þannig að það má búast við einhverjum hrekkjum í Word en annar yfirlestur virkar prýðilega.
Hér er uppkast leiðbeininga fyrir notkun í Word 2008 og ekki veitir af:
Um yfirlestur í Word 2008
Posted in Fréttir og blogg, Leiðbeiningar, Microsoft Word 2008, Stafsetning 2010 | No Comments »
Mánudagur 24. nóvember 2008

Þrátt fyrir að Pages sé nýlegt forrit og noti alla þá nýjustu tækni sem önnur Apple-forrit eru byggð þá er yfirlesturinn nokkuð frábrugðinn í hegðun þar.
Þannig getur forritið blandað saman tungumálum í sama skjalinu og er þá textinn valinn og merktur tilteknu tungumáli. Pages kallar þá á viðeigandi yfirlestur eftir tungumáli.
Því er ekki að undra að notendur skilji ekki hví strikað er undir gild, íslensk orð þegar nýtt skjal er ritað eða unnið er í eldri skjölum.
Tungumál skoðað eða stillt
Veldu t.d. sniðmátið „Blank“. Áður en þú byrjar að skrifa geturðu skoðað tungumálið í upplýsingaglugga Pages undir „T“, „More“ og „Language“. Ef þú sérð gluggann ekki geturðu birt hann með „View > Show Inspector“.
Ef þú ert að vinna í skjali sem inniheldur texta nú þegar skaltu velja hann allan (Edit > Select All) og stilla síðan tungumálið.
Síðan skaltu ekki gleyma að uppfæra stíl textans sem er í „stílaskúffunni“ (View > Show Styles Drawer). Þú sérð rautt tákn við stíl sem hefur breyst og hægrismellir á hann og velur „Redefine Style From Selection“. Þá tollir tungumálið við þann stíl ef þú notar hann síðar.
Yfirlestur er síðan aðgengilegur á hefðbundnum stað undir Edit > Spelling
Tags: Apple, iWork, Pages
Posted in Apple iWork Pages, Leiðbeiningar, Notkun í ýmsum forritum, Stafsetning 2004, Stafsetning 2010 | No Comments »
Mánudagur 24. nóvember 2008
Word-tengingin er ræst sjálfkrafa ef Microsoft Word 2004 eða 2008 er ræst.
Þá birtast hnappar efst á skjánum sem hægt er að nota til að framkvæma yfirlestur.
Ef þeir birtast ekki skaltu framkvæma eftirfarandi:
Hættu í Word. (Word > Quit Word)

Veldu Apple > System Preferences

Smelltu á „Stafsetning“ sem er neðst undir „Other“.

Stillingaspjald Stafsetningar birtist þá og þar skaltu smella á Word-flipann.

Þar skaltu haka við birtingu hnapparandar.
Nú skaltu ræsa Word 2004 eða 2008.
Þá ættu hnapparnir að birtast efst á skjánum.

Ef þeir gera það ekki (sumir hafa lent í því við prófanir) geturðu ræst hjálparforritið handvirkt en það er staðsett í möppunni Diskur > Library > Application Support > Stafsetning: og heitir „Stafsetning fyrir Word 2008“. Tvísmelltu bara á það forrit (þú getur dregið það í forritaröndina Dock neðst á skjánum til að ræsa það þaðan á einfaldan hátt.
Tags: Microsoft Word 2004, Microsoft Word 2008
Posted in Leiðbeiningar, Microsoft Word 2004, Microsoft Word 2008, Notkun í ýmsum forritum, Stafsetning 2010 | No Comments »
Mánudagur 24. nóvember 2008
Meðal helstu nýjunga í þessari útgáfu er verulega endurbættur yfirlestur í Word. Nú birtast einfaldir hnappar efst á skjánum þegar Word er ræst með helstu aðgerðum yfirlestrar.
Word 2004 bætist í hópinn
Þeir voru þónokkrir sem höfðu samband til að lýsa yfir áhuga á því að fá þessa virkni í 2004 útgáfuna af Word og það er einstaklega ánægjulegt að skýra frá því að nýjasta útgáfan virkar einnig í Word 2004.
Yfirlestrarglugginn

Hér sést svo sjálfur yfirlestrarglugginn þar sem það er nú leikur einn að renna yfir skjöl og framkvæma leiðréttingar. Það sem meira er inniheldur glugginn nú flýtihnappa þannig að það er hægt að framkvæma allar aðgerðir án þess að nota músina!
Prófaðu strax í dag
Drífðu þig inn á stafsetning.is/2009 og nældu þér í þessa endurbættu útgáfu.
Tags: Microsoft Word 2004, Microsoft Word 2008
Posted in Fréttir og blogg, Microsoft Word 2004, Microsoft Word 2008, Notkun í ýmsum forritum, Stafsetning 2010 | No Comments »
Fimmtudagur 20. nóvember 2008
Stafsetning 2009 virkar í öllum forritum sem nýta kerfislægan yfirlestur. Þetta eru í raun öll nýleg forrit með örfáum undantekningum.
Sendu okkur póst ef þú vilt vita hvort hugbúnaðurinn virkar í einhverju ákveðnu forriti.
Posted in Notkun í ýmsum forritum, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 19. nóvember 2008

Það átta sig væntanlega fæstir á því hvað það er mikil vinna á bakvið ýmsar prófanir og nauðsynlega gagnasöfnun sem tengist því að þróa hugbúnað eins og Stafsetningu 2009.
Mig langar því að varpa örlitlu ljósi á eitt þeirra forrita sem eru notuð við uppfærslu gagnasafns Stafsetningar til að tryggja að málfar og orð úr fréttaflutningi séu sannarlega staðfest af hugbúnaðinum.
Forritið „Fréttayfirlestur Stafsetningar“ er mjög merkilegt forrit. Ekki aðeins getur það lesið yfir allar nýjustu greinar og bloggfærslur á Íslandi heldur safnar það saman óþekktum orðum sem farið er handvirkt í að samþykkja - nú eða ekki - í orðasafn Stafsetningar.
Skjámynd sýnir virkni hugbúnaðarins sem hefur annars reynst mjög vel við að fylgjast með fréttum í kreppunni!
Þannig þekkir Stafsetning 2009 Obama, McCain og Peningamarkaðssjóð 9

Fréttayfirlestur Stafsetningar
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 19. nóvember 2008
Sagan á bakvið nýja innsetningarforrit Stafsetningar 2009 er kannski áhugaverð fyrir suma. Sérstaklega því ég er sannfærður um að það er ekki til fallegra innsetningarforrit í bransanum.
Ég er almennt þeirrar skoðunar að innsetningarforrit séu of of flókin fyrir venjulegt fólk. Ekki það að það sé slæmt að vera „venjulegt fólk“ heldur þvert á móti. Svo má alltaf láta hlutina líta betur út.
Það var því hér í miðju lungnabólgufári með 40° hita sem ég réðst í að bæta ástandið með því að henda innsetningarforriti Apple og skrifa nýtt því einungis þannig gæti ég uppfyllt óskir mínar um fullkomna upplifun innsetningar fyrir „venjulegt fólks“ og fagurkera.
Skoðum upphafsmyndina:

Þetta er auðvitað nett bilun, en svartir, glansandi hnappar eru bara svooo fallegir.
Aðgangsorð/lykilorð
Það er alveg merkilegt hvað Íslendingar (og væntanlega aðrir líka) eru slappir við að muna aðgangsorð þannig að það þurfti alveg sérstaklega að útskýra hvað það var o.s.frv. ásamt því að taka tillit til þeirra sem nota hreinlega ekkert aðgangsorð (skuggalega algengt).
Tölva er ekki bara tölva
Veit nú ekki alveg nákvæmlega hvað veldur en svo virðist sem Mac-notendur tengist persónulegum böndum við tölvurnar sínar. Þá þýðir væntanlega ekkert að birta mynd af rangri tölvu við innsetningu eða hvað?
Skoðum innsetningu á hvítri 24-tommu iMac:

Mikið rétt - það birtist mynd af tölvunni.
Skoðum að gamni innsetningu á Mac mini með Apple Cinema skjá:

Þetta er auðvitað hlutur sem notendur munu ekki taka eftir því þeim mun finnast svo eðlilegt að sjá tölvuna sína fyrir framan sig.
Það er fullt af svona litlum hlutum í nýja innsetningarforritinu en mesti töffaraskapurinn er án efa fólginn í hreyfingunum sem eru notaðar á milli mismunandi stiga innsetningar.
Eins og með allt svona er sjón sögu ríkari þannig að þú skalt bara sækja hugbúnaðinn og prófa!
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 19. nóvember 2008
Jæja loksins fá notendur Stafsetningar 2004 nýju forútgáfuna í hendurnar. Það eru ómældar vinnustundir á bakvið þennan merka áfanga enda má segja að Stafsetning hafi verið skrifuð frá grunni fyrir þessa stóru uppfærslu. Það er mér því sönn ánægja að tilkynna að næsta stóra uppfærsla Stafsetningar er að verða tilbúin eftir umfangsmiklar endurbætur og þú getur fengið að prófa hana strax í dag.
Þessi uppfærsla verður ókeypis fyrir þá sem keyptu leyfi fyrir Stafsetningu 2004 eftir 1. janúar 2008 en aðrir eigendur munu njóta uppfærsluafsláttar.
Kostar ekkert að prófa
Góðu fréttirnar eru auðvitað að það kostar ekkert að prófa! Þú bara ferð á stafsetning.is/2009 og sækir eintak.
Öll raðnúmer Stafsetningar 2004 er hægt að nota til að setja inn þessa forútgáfu tímabundið — jafnvel þó búið sé að nota það á annarri tölvu.
Nýjungar eru meðal annarra:
• Leopard-samhæfni
• Intel-samhæfni
• Stóraukinn ræsihraði sem flýtir fyrir ræsingu tölvunnar
• Uppfærslukerfi
• Growl-stuðningur
• Fjölnotendastuðningur fyrir „Fast user switching“ og notendur með heimasvæði á Mac OS X Server
• Nýtt og einfalt innsetningarforrit
• Hægt að fjarlægja Stafsetningu af tölvum á einfaldan hátt (og síðar meir flytja leyfið þegar þú skiptir um tölvu)
• Forgangsraðaðar leiðréttingartillögur
• Bætt greining orða
• NeoOffice tenging
• OpenOffice tenging
• Word 2008 tenging
Meira á leiðinni
Það skal tekið fram að fjöldi nýjunga er enn í vinnslu og er væntanlegur í næstu forútgáfum. Það er til dæmis ekki einfalt að fá tillögur inn í Word 2008 en það stendur til bóta á næstu dögum. Endurbótum og nýjungum verður bætt við smám saman næstu vikurnar með uppfærslukerfi Stafsetningar 2009.
Lokaútgáfa hugbúnaðarins er síðan áætluð á markað í desember.
Þér er ekkert að vanbúnaði. Skelltu þér inn á stafsetning.is og náðu í sjóðheitt eintak af Stafsetningu 2009. Taktu þátt í að prófa framtíðina og láttu okkur vita hvað þér finnst með því að senda okkur tölvupóst á fyrirspurnir -hjá- stafsetning.is.
Tags: forútgáfa
Posted in Fréttir og blogg, Stafsetning 2010 | No Comments »
Miðvikudagur 22. október 2008

Í Safari vafranum er notuð algengasta mynd yfirlestrar, en þá er smellt á valblaðið Edit og þar undir valið:
- Spelling and Grammar (Mac OS X 10.5)
- Spelling (Mac OS X 10.4)
Þá sjást valkostirnir en til að kanna texta í textasvæði í skyndi er best að nota „Check Document Now“ eða þar til gerðan flýtihnapp sem sést fyrir aftan skipunina.
Ef þú vilt að Safari lesi alltaf yfir texta sem þú slærð inn geturðu valið „Check Spelling While Typing“.
Google leit í Safari (myndband)
Tags: Apple, me.com, Safari, vafrar
Posted in Apple Safari, Leiðbeiningar, Notkun í ýmsum forritum, Stafsetning 2004, Stafsetning 2010 | No Comments »