Notkun Stafsetningar 2009 í Pages 3 og 4 (’08 og ´09)

Mánudagur 24. nóvember 2008


Þrátt fyrir að Pages sé nýlegt forrit og noti alla þá nýjustu tækni sem önnur Apple-forrit eru byggð þá er yfirlesturinn nokkuð frábrugðinn í hegðun þar.

Þannig getur forritið blandað saman tungumálum í sama skjalinu og er þá textinn valinn og merktur tilteknu tungumáli. Pages kallar þá á viðeigandi yfirlestur eftir tungumáli.

Því er ekki að undra að notendur skilji ekki hví strikað er undir gild, íslensk orð þegar nýtt skjal er ritað eða unnið er í eldri skjölum.

Tungumál skoðað eða stillt

Veldu t.d. sniðmátið „Blank“. Áður en þú byrjar að skrifa geturðu skoðað tungumálið í upplýsingaglugga Pages undir „T“, „More“ og „Language“.  Ef þú sérð gluggann ekki geturðu birt hann með „View > Show Inspector“.

Ef þú ert að vinna í skjali sem inniheldur texta nú þegar skaltu velja hann allan (Edit > Select All) og stilla síðan tungumálið.

Síðan skaltu ekki gleyma að uppfæra stíl textans sem er í „stílaskúffunni“ (View > Show Styles Drawer). Þú sérð rautt tákn við stíl sem hefur breyst og hægrismellir á hann og velur „Redefine Style From Selection“. Þá tollir tungumálið við þann stíl ef þú notar hann síðar.

Yfirlestur er síðan aðgengilegur á hefðbundnum stað undir Edit > Spelling


Yfirlestur texta í textasvæði Safari

Miðvikudagur 22. október 2008

Safari

Í Safari vafranum er notuð algengasta mynd yfirlestrar, en þá er smellt á valblaðið Edit og þar undir valið:

  • Spelling and Grammar (Mac OS X 10.5)
  • Spelling (Mac OS X 10.4)

Þá sjást valkostirnir en til að kanna texta í textasvæði í skyndi er best að nota „Check Document Now“ eða þar til gerðan flýtihnapp sem sést fyrir aftan skipunina.

Ef þú vilt að Safari lesi alltaf yfir texta sem þú slærð inn geturðu valið „Check Spelling While Typing“.

Google leit í Safari (myndband)


Safari