Yfirlestur texta í textasvæði Safari
Miðvikudagur 22. október 2008Í Safari vafranum er notuð algengasta mynd yfirlestrar, en þá er smellt á valblaðið Edit og þar undir valið:
- Spelling and Grammar (Mac OS X 10.5)
- Spelling (Mac OS X 10.4)
Þá sjást valkostirnir en til að kanna texta í textasvæði í skyndi er best að nota „Check Document Now“ eða þar til gerðan flýtihnapp sem sést fyrir aftan skipunina.
Ef þú vilt að Safari lesi alltaf yfir texta sem þú slærð inn geturðu valið „Check Spelling While Typing“.

